Dauðsföllum fækkar mjög 8. mars 2005 00:01
Dauðsföllum vegna mislinga hefur fækkað um 40 prósent á síðustu fimm árum. Takmark Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna er að fækka dauðsföllum vegna mislinga um helming fyrir árslok 2005. Allar líkur eru á að það takist. Árið 1999 létust tæplega 900 þúsund jarðarbúar úr mislingum. Í árslok árið 2003 var þessi tala komin niður í rúma hálfa milljón. Talsmenn Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna segjast himinlifandi með árangur síðustu ára en mislingar eru stór þáttur í barnadauða á heimsvísu og því er hægt að útrýma með bólusetningum. Fyrir aðeins áratug létust milljónir barna árlega úr þessum sjúkdómi sem er einn mest smitandi veirusjúkdómur sem til er og mörg börn sem veiktust urðu fyrir varanlegum miska, svo sem blindu eða heilaskaða. Mislingum hefur nánast verið útrýmt hér á landi með bólusetningum. Þessa miklu fækkun dauðsfalla vegna mislinga á síðustu árum má rekja til skuldbindinga stjórnvalda víða um heim um að fylgja áætlun Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar um bólusetningar barna. Samkvæmt henni skal bólusetja að minnsta kosti 90 prósent barna á hverju svæði og skal hvert barn á aldrinum 9 mánaða til 14 ára bólusett tvisvar. Frá 1999 til 2003 voru 350 milljónir barna í heiminum bólusett, þar af 150 milljónir barna í Afríku, enda hefur dauðsföllum vegna mislinga fækkað þar um nær helming á síðustu árum.
Erlent Fréttir Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Innlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent Fleiri fréttir „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Sjá meira