Erlent

Hjúkrunarfræðingur smitast

Greint hefur verið frá því að víetnamskur hjúkrunarfræðingur hafi smitast af fuglaflensunni. Grunur leikur á að hann hafi smitast af sjúklingum sem hann annaðist en það er þó ekki talið öruggt. Fórnarlömb flensunnar hafa fram til þessa smitast af sýktu kjöti en smit á milli manna eru fátíð. Nái veiran sem veldur flensunni að stökkbreytast þannig að hún geti borist á milli manna óttast sérfræðingar að heimsfaraldur geti verið í uppsiglingu. 46 hafa þegar látist úr fuglaflensu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×