Sport

Meiðsli hjá United

Gary Neville og Louis Saha hjá Manchester United hafa báði verið útilokaðir frá leik liðsins við AC Milan í Meistaradeildinni. Saha á við hnémeiðsli að stríða og fer ekki með liðinu til Ítalíu, en Gary Neville á við ökklameiðsli að stríða sem hann hlaut í deildarleiknum gegn Portsmouth fyrir 10 dögum og mun líklega ekki leika með liðinu þó hann fari með til Mílanó. Aðrir leikmenn United eru sagðir í þokkalegu standi og gert er ráð fyrir að Ruud van Nistelrooy verði í fremstu víglínu, en hann er ný kominn til leiks á ný eftir meiðsli og munar um minna hjá United gegn fyrnasterkri vörn Ítalanna. Milan er óneitanlega í sterkri stöðu fyrir síðari leikinn, eftir að hafa náð að leggja enska liðið á útivelli 1-0 í fyrri leiknum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×