Sport

Collina dæmir á Stamford Bridge

Ítalski knattspyrnudómarinn Pierluigi Collina mun dæma síðari leik Chelsea og Barcelona, sem fram fer í Meistaradeildinni á þriðjudagskvöld. Collina er af flestum talinn besti dómari í heiminum í dag og er mjög virtur í knattspyrnuheiminum. Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea lét hafa eftir sér að hann hefði engar áhyggjur af öðru en að Collina myndi hafa góða stjórn á leiknum og skaut þar með á hinn sænska Anders Frisk sem dæmdi fyrri leik liðanna fyrir tæpum hálfum mánuði, en þá fór það mjög fyrir brjóstið á Portúgalanum að sjá dómarann eiga spjall við Frank Riijkaard, þjálfara Barcelona í hálfleik.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×