Sport

Mourinho rýfur þögnina

Jose Mourinho hefur loksins rofið þögn sína frá leiknum gegn Barcelona í síðustu viku. Hann heldur því staðfastlega fram að hann hafi séð Frank Rijkaard fara inn í búningsklefa Anders Frisk í hálfleik. Mourinho segist einnig gruna að UEFA muni gera allt til að hafa dómgæsluna gallalausa í síðari leiknum og því sé líklegt að leitað verði til hárlausa Ítalans knáa, Pierluigi Collina. "Það er eitthvað sem segir mér að hann muni dæma leikinn, sá besti í heiminum. Hinn fullkomni dómari með persónuleika og gæðastimpil á sér," segir Mourinho.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×