Laug um NASA-vísindasamkeppni 26. febrúar 2005 00:01
Því verður ekki neitað að Saurabh Singh er frakkur. Hann laug því til að hann hefði unnið aðþjóðlega vísindasamkeppni NASA, keppni sem er ekki einu sinni til, en fékk samt alla til að trúa því. Singh er sautján ára og kemur frá einu fátækasta héraði Indlands. Það vakti því ekki litla athygli þegar fréttist að hann hefði sigrað í vísindakeppni Bandarísku geimferðastofnunarinnar, NASA. Héraðsstjórnin í Uttar Pradesh veitti honum nokkur hundruð þúsund króna verðlaun og fjölmiðlar hömpuðu snillingnum. Meira að segja forseti landsins sá ástæðu til að bjóða honum í heimsókn og segja má að þá hafi spilaborgin hrunið því þegar nánar var að gáð var saga Singh vægast sagt ótrúleg. Hann segist hafa tekið próf NASA í Oxford, ásamt forseta Indlands og eina indverska geimfaranum, sem fórst í Colombíu-slysinu fyrir meira en ári. Hann sagðist hafa gist í Lundúnum en tekið leigubíl til Oxford á hverjum degi, en það er 230 kílómetra leið. Að vísu er þetta langa ferðalag skiljanlegt því Singh gisti í Buckingham-höll, nema hvað. Og verðlaunaskjalið sem Singh fékk er stórundarlegt. Í fyrstu kannaðist enginn við nöfn þeirra sem skrifuðu undir það, þangað til að það rann upp fyrir mönnum að hugsanlega myndi nærri ólæs Indverji skrifa nöfn sumra yfirmanna NASA eins og á skjalinu. Málið er auðvitað ákaflega vandræðalegt fyrir allt fyrirfólkið sem féll fyrir gabbinu en Singh sætir nú lögreglurannsókn.
Erlent Fréttir Mest lesið Íslensk stúlka í útskriftarveislu sem breyttist í martröð Innlent Dúxinn í Kvennó úr óvæntri átt Innlent Margrét Hauksdóttir er látin Innlent Tíu milljónum fátækari eftir augnablik af einbeitingarleysi Innlent Nauðlending á þjóðveginum Innlent Höfum fullkomlega misst stjórn á útlendingamálum Innlent Líkir aðalfundi Sósíalista við Warhammer-útsöluna í Nexus Innlent Telur að meðleigjandinn hafi kveikt í Innlent „Hann er að leika sér að eldinum!“ Erlent Náðar spilltan fógeta Erlent Fleiri fréttir „Hann er að leika sér að eldinum!“ Sakaður um morðtilraun og akstur undir áhrifum fíkniefna Náðar spilltan fógeta Telja vanrækslu hafa valdið mannskæðu þyrluslysi í Finnlandi Fjögur börn í hópi þeirra mest slösuðu „Bara sjokk hvað maður var nálægt þessu“ Einn í haldi eftir að ekið var á fólk í Liverpool Deila enn um „stóra fallega“ frumvarpið Hnekkti dómi fyrrverandi kanslara fyrir meinsæri Hjónaerjur í opinberri heimsókn Macrons Mestu árásirnar hingað til, aftur Kim reiður yfir misheppnaðri sjósetningu Útskrifuð af geðdeild daginn fyrir stunguárásina í Hamborg Konur og karlar fái sortuæxli á ólíkum stöðum Mannfall þegar skólabygging var sprengd Segir Pútín „genginn af göflunum“ og íhugar refsiaðgerðir Frestar fimmtíu prósenta tollum á Evrópusambandið Ætla að hernema stærstan hluta Gasa og smala íbúum á afmörkuð „öryggissvæði“ Fundu lík fimm skíðamanna nærri Zermatt Umfangsmestu loftárásir frá upphafi stríðs Níu af tíu börnum tveggja lækna létust í árásum Ísraela Árásarkonan Þjóðverji á fertugsaldri Tólf særðir eftir hnífstunguárás í Hamborg Vilja breyta mannréttindasáttmála til að auðvelda sér að sparka innflytjendum úr landi Hvetja Íslendinga í Harvard til að hafa samband Ákærður fyrir að myrða sendiráðsstarfsfólk Ísraels Netanjahú segir Starmer, Macron og Carney draga taum Hamas Rússar notuðu Brasilíu sem njósnaraverksmiðju Íslendingur í Bandaríkjunum: „Þetta er mjög óþægileg staða“ Banna erlendum nemendum að sækja Harvard Sjá meira