Menning

Skrifstofuhótel opnað á Selfossi

Fyrsta skriftstofuhótelið hér á landi verður opnað á Selfossi á morgun. Markmiðið með uppbyggingu þess er að koma til móts við þarfir íbúa svæðisins sem starfa á höfuðborgarsvæðinu en vilja vinna 2-3 daga í viku í heimabyggð. Í fréttatilkynningu frá Sunnan3, eins af fyrirtækjunum sem stendur að stofnun hótelsins, segir að um sé að ræða fullkomna skrifstofuaðstöðu með öflugu háhraðasambandi og hvetjandi vinnuumhverfi. Kostir skrifstofuhótels séu augljósir fyrir starfsfólk sem þurfi að sækja vinnu fjarri heimabyggð en hér sé einnig um að ræða hagræðingu fyrir vinnuveitendur í lægri skrifstofukostnaði. Að auki geti skrifstofuhótel haft samfélagsleg áhrif þar sem það geti dregið úr umferð, mengun og slysahættu. Hótelið er samvinnuverkefni Sunnan3 - rafræns samfélags, Verkfræðistofu Suðurlands og Tölvu- og radíóþjónustu Suðurlands.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×