Sport

Eitt stysta golfmót sögunnar

Ástralinn Adam Scott vann sigur í bráðabana á einu stysta golfmóti atvinnumanna sem farið hefur fram á PGA-mótaröðinni. Aðeins tókst að ljúka tveimur hringjum vegna mikilla rigninga í Los Angeles en Scott sigraði Bandaríkjamanninn Chad Campbell á fyrstu holu í bráðabana. Tiger Woods, sem hefði getað náð efsta sæti heimslistans með því verða í einu af þremur efstu sætunum, varð að sætta sig við 13. sætið á mótinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×