Sport

Davis með forystu á Nissan-mótinu

Brian Davis hefur forystu á Nissan-mótinu í golfi eftir fyrsta hring en mótið fer fram á Riviera-vellinum í Los Angeles. Davis lék á 6 höggum undir pari. Norður-Írinn Darren Clarke er annar, höggi á eftir, en hann fór holu í höggi á sjöttu braut. Clarke lék völlinn á 66 höggum eins og Englendingurinn Luke Donald og Bandaríkjamaðurinn Brett Quigley. Tiger Woods er ásamt 6 kylfingum á 67 höggum, tveimur á eftir Brian Davis. Tiger Woods getur endurheimt fyrsta sætið á styrkleikalistanum í golfi takist honum að verða í einu af fjórum efstu sætunum. Daninn Thomas Björn hélt upp á 34 ára afmælisdag sinn með því að taka forystu á opna Malasíumótinu í Kúala Lúmpúr en það er hluti af evrópsku mótaröðinni. Björn lék á 8 höggum undir pari í gær. Fresta varð keppni um tíma vegna storms en Taílendingurinn Jaidee Tongshee, sem hafði þriggja högga forystu eftir fyrsta keppnisdag, lauk keppni í morgun og endurheimti þá forystuna. Hann er einu höggi á undan Dananum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×