Mesta árás frá styrjaldarlokum 14. febrúar 2005 00:01
Gríðaröflug sprengja kostaði þrettán lífið í Líbanon í dag, en þetta er mannskæðasta árás þar síðan að borgarastyrjöldinni lauk. Íslamskur öfgahópur lýsti tilræðinu á hendur sér. Öflug sprenging varð á fjölförnum stað í Beirút um hádegisbil. Fljótlega bárust fregnir þess efnis að þrettán hefðu farist og að hátt í hundrað hefðu særst. Nokkur stund leið þó áður en ljóst var hvers eðlis sprengingin var. Bassam Yamout, líbanskur þingmaður, sagði í viðtali við fjölmiðla skömmu eftir atburðinn að sprengingin hefði orðið í sömu mund og bifreið Rafiks Hariris, fyrrverandi forsætisráðherra, hefði verið ekið hjá. Í ljós kom að öflug bílsprengja sprakk þegar bílalest forsætisráðherrans fyrrverandi ók fram hjá og ljóst er hann var ráðinn af dögum. Fleiri fyrrverandi ráðherrar eru meðal særðra. Hariri var forsætisráðherra Líbanons í tólf ár og honum er þökkuð sú uppbygging sem þar hefur átt sér stað. Sjálfur var hann vellauðugur verktaki áður en hann fór út í stjórnmál. Hann sagði af sér embætti í október síðastliðnum vegna deilna við forseta landsins, sem nýtur stuðnings Sýrlendinga. Hariri kvatti nýlega til þess að sýrlenskar hersveitir í Líbanon hyrfu á braut. Íslamskur öfgahópur gekkst síðdegis við tilræðinu og sagði ástæðuna tengsl Hariri við Sádi-Arabíu. Hariri öðlaðist auðæfi sín sem verktaki þar í landi. Hópurinn er óþekktur. Þetta er mannskæðasta árás í Líbanon síðan að borgarastyrjöldinni þar lauk árið 1990 og hún varpar skugga á friðsamlega uppbyggingu sem þar hefur farið fram. Á meðan reynt hefur verið að endurvekja Beirút sem París Miðausturlanda og blása lífi í ferðaþjónustu hefur spenna kraumað undir niðri, ekki síst á milli kristinna manna og múslíma. Hætt er við að myndir á borð við þá sem er hér fyrir ofan verði síst til að lokka ferðamenn til landsins.
Erlent Fréttir Mest lesið Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Erlent Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Innlent Kristrún og von der Leyen í útsýnisflugi um eldgosið Innlent Landlæknir hlynnt því að banna ljósabekki Innlent Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Innlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Fleiri fréttir Borgarstjóri Istanbúl í tuttugu mánaða fangelsi Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Ísrael sprengir í Sýrlandi: Þrír látnir og tugir særðir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Sjá meira