Sjíar komast til valda í Írak 13. febrúar 2005 00:01
Þrjú framboð súnní-múslima og Kúrda fengu nær níu af hverjum tíu greiddum atkvæðum í kosningunum til stjórnlagaþings Íraks sem fram fóru undir lok síðasta mánaðar. Sameinaða íraska bandalagið, listinn sem var settur saman að frumkvæði hins áhrifamikla sjíaklerks Ali al-Sistani, fékk nær helming atkvæða og er langstærstur allra framboða. "Okkur ber skylda til þess að vinna saman í þágu landsmanna," sagði Ibrahim al-Jaafari, núverandi varaforseti Íraks og hugsanlegur frambjóðandi til forsætisráðherra eftir að tilkynnt var um úrslitin í gær. Stjórnlagaþingið kýs forseta og tvo varaforseta sem útnefna forsætisráðherra ríkisstjórnar sem stýrir landinu fram að þingkosningum á grundvelli nýrrar stjórnarskrár. Fyrirfram var búist við því að Sameinaða íraska bandalagið myndi fá flest atkvæði og kemur jafnvel helst á óvart að sigur bandalagsins var ekki stærri. Bandalagið þarf því að semja við Kúrdíska bandalagið og Lista Íraka, flokk Iyad Allawi forsætisráðherra, um val á forsætisnefnd og forsætisráðherra. Úrslit kosninganna þýða að sjía-múslimar komast til valda í Írak í fyrsta sinn í sögu landsins. Þó þeir telji 60 prósent landsmanna hafa súnní-múslimar, sem eru um 20 prósent landsmanna, lengst af farið með völd í Írak. Kjörsókn meðal súnní-múslima var mjög lítil, hvort tveggja vegna þess að leiðtogar þeirra höfðu kvatt þá til að hunsa kosningarnar og vegna ótta þeirra við árásir á kjörstaði. Í Salahadin-héraði þar sem súnníar eru fjölmennastir var kjörsókn aðeins 29 prósent. Hún var enn þá minni í Anbar-héraði þar sem einungis tvö prósent atkvæðabærra manna skiluðu sér á kjörstað. Þessi laka kjörsókn er talin ein helsta ógnin við stjórnlagaferlið. Fái súnní-múslimar ekki aðkomu að því umfram það sem kosningaúrslitin tryggja þeim er óttast að óöldin í landinu kunni að versna enn. 111 listar voru í framboði en aðeins tólf þeirra fá sæti á stjórnlagaþinginu.
Erlent Fréttir Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Fleiri fréttir Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Sjá meira