92 kærðir í mútumáli 11. febrúar 2005 00:01
Sænskir saksóknarar hafa ákært 92 einstaklinga í hneykslismáli sem hefur umleikið áfengisverslun sænska ríkisins, Systembolaget. 77 starfsmenn Systembolaget hafa verið ákærðir fyrir að þiggja mútur og fimmtán starfsmenn þriggja birgja hafa verið ákærðir fyrir að greiða eða bjóða mútur. Meirihluti þeirra 77 starfsmanna Systembolaget sem voru ákærðir störfuðu sem verslunarstjórar. Þeir eru ákærðir fyrir að þiggja mútur frá áfengisbirgjum fyrir að taka vörur þeirra til sölu í verslunum sínum. Janne Lehtinen, sem stýrði rannsókninni, sagði að megnið af mútunum hefði verið fólgið í peningagreiðslum inn á launareikninga starfsmanna Systembolaget. Múturnar námu andvirði um tíu milljóna íslenskra króna á tveggja ára tímabili. Málið kom upp á yfirborðið í janúar 2003 þegar stjórnendur Systembolaget ráku fimm verslunarstjóra og sögðu ástæðuna þá að þeir hefðu þegið mútur frá birgjum sem vildu koma ákveðnum vörum á framfæri. Samkvæmt lögum um áfengissölu er verslunarstjórum stranglega bannað að koma einstökum tegundum á framfæri umfram aðrar. Norðmenn rannsaka líka meinta mútuþægni starfsmanna norsku áfengiseinkasölunnar, Vinmonopolet. Tíu starfsmenn sæta refsingum án þess þó að sæta ákæru, fyrir að hafa þegið gjafir og ókeypis skemmtanir frá áfengisinnflytjendum. Tveir kunna að missa vinnuna, þrír kunna að sæta stöðulækkun og fjórir fá skriflega viðvörun. Enn á eftir að taka ákvörðun um einn þeirra sem sætti rannsókn. Forstjóri Vinmonopolet, Knut Grøholt, sætti einnig rannsókn fyrir að hafa þegið utanlandsferðir frá öðrum fyrirtækjum. Rannsóknarmenn komust að þeirri niðurstöðu að hann hefði ekkert brotið af sér þar sem hann hefði farið í ferðirnar til að byggja upp og viðhalda viðskiptatengslum. Fyrirtækin sem hann þáði ferðir af voru meðal annarra símafyrirtækið Telenor og dótturfyrirtæki þess.
Erlent Fréttir Mest lesið Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Innlent Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Erlent Sólheimar segja upp þjónustusamningnum Innlent Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Innlent Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Innlent Segir Stefán hafa gert atlögu að friðhelgi einkalífs Innlent Góðan daginn býður góðan dag Innlent „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Innlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Innlent Guðmundarlundur á bólakafi Innlent Fleiri fréttir Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Sjá meira