Ferðaþjónusta skilar fátækum litlu 9. febrúar 2005 00:01
Vestrænir aðilar, hótelkeðjur og afþreyingarfyrirtæki hvers konar, hirða megnið af því fé sem vestrænir ferðalangar skilja eftir í mörgum af þeim fátækari löndum heims sem eru vinsæl meðal erlendra ferðamanna og er því ferðaþjónusta víða ekki að skila þeim tekjum í ríkiskassann sem margir hafa reitt sig á. Meðan leiðtogar heimsins ræða vandamál fátækari ríkja reglulega á fundum sínum og taka jafnvel höndum saman um að minnka fátækt um helming í heiminum næsta áratuginn eða svo, eru vestræn fyrirtæki í óða önn að leggja undir sig flesta þá starfsemi sem ábatasöm getur talist í mörgum fátækum löndum og koma þannig í veg fyrir að efnahagur margra ríkja vænkist sem því nemur. Sérstaklega er þetta áberandi í Mið-Ameríku og í löndum í Karabíska hafinu enda er þangað stutt að fara fyrir velmegandi Bandaríkjamenn sem eru margir hverjir ekki feimnir við að opna buddu sína á ferðalögum. Nokk sama er hvar tekið er niður, sagan er víðast hvar eins. Meirihluti hótela á helstu ferðamannastöðum á Kúbu eru í eigu Spánverja eða annarra Evrópubúa. Bandarískir aðilar eiga flestöll hótelin á Jamaika og sömu sögu er að segja af vinsælustu ferðamannastöðum í Mexíkó, Panama og á Kosta Ríka. Ríkisstjórn Kosta Ríka á í megnustu erfiðleikum með að kosta og viðhalda þeim fjölmörgu þjóðgörðum sem þar eru þrátt fyrir að fjöldi erlendra ferðamanna þar hafi þrefaldast síðustu tíu árin. Sömu sögu má segja af Jamaika þar sem ríkisstjórnin þurfti að leita á náðir bílaframleiðandans Toyota til að byggja og viðhalda þjóðvegum í landinu þrátt fyrir að eyjan hafi verið gríðarlega vinsæll dvalarstaður erlendra ferðamanna um langa hríð. Verra er hins vegar að ekki eingöngu skilar lítið fé sér í ríkiskassa viðkomandi þjóða heldur er það regla frekar en undantekning að umræddar vestrænar hótelkeðjur greiða mörg hver engin laun til starfsmanna sinna í þessum löndum heldur verða þeir að láta sér nægja þjórfé gesta sem laun. Víst er að stöku einstaklingur hefur eflaust af því bærilegar tekjur en mun fleiri bera skarðan hlut frá borði og verða auk þess að vinna langan vinnudag flestalla ef ekki alla daga vikunnar. Fæstir eru tryggðir og veikinda- eða dagpeningar þekkjast ekki. Fleiri og fleiri erlendir ferðamenn gera sér grein fyrir þessu og gera sér far um að kaupa gistingu og fæði aðeins á þeim stöðum sem innfæddir eiga og reka og tryggja með þeim hætti að allt fjármagnið verður eftir í landinu í stað þess að fara beint inn á bankareikninga stórfyrirtækja í Bandaríkjunum og í Evrópu.
Erlent Fréttir Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Innlent Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Fleiri fréttir Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Sjá meira