Fjármunir gufa stundum upp 13. janúar 2005 00:01
Fjármunir, sem lofað er vegna náttúruhamfara, eiga það til að gufa upp þegar á reynir, en þetta gerist bæði vegna spillingar og vanefnda. Því hafa íbúar í sumum ríkjum Mið-Ameríku, í Bam í Íran og í Afganistan fengið að kynnast. Þegar hörmungar ganga yfir land bregst alþjóðasamfélagið við með samúð og loforðum um stórfellda aðstoð. Reyndin hefur hins vegar oftast verið sú að peningarnir hverfa um leið og myndatökuvélarnar fara af vettvangi. Fyrir sex árum gekk fellibylurinn Mitch yfir smáríkin í Mið-Ameríku. Níu þúsund manns létu lífið og eignatjón var metið á meira en níu milljarða króna. Á þessum tíma voru þetta mestu náttúruhamfarir aldarinnar og loforð um aðstoð streymdu inn. En þegar líkin höfðu verið grafin og myndavélarnar farnar hurfu peningarnir einnig. Víst var byrjað á uppbyggingarstarfi en það fjaraði smám saman út. Á dögunum heimsóttu fréttamenn New York Times Hondúras og horfðu þar furðu lostnir á hálfbyggt stórt þorp sem átti að vera hluti af viðreisnarstarfinu. Það var búið að byggja þar fjölmörg hús en þau voru bara fokheld. Það átti eftir að leggja í þau rafmagn og skolplagnir, en peningarnir voru búnir þegar að þessum liðum kom. Sömu sögu er að segja í Íran þar sem 40 þúsund manns fórust í jarðskjálfta í borginni Bam í fyrra. Því var heitið að þessi tvö þúsund ára gamla borg skyldi endurreist. Alþjóðasamfélagið lofaði einum milljarði dollara. Til dagsins í dag hafa sautján milljónir dollara skilað sér. Alþjóðasamfélagið lofaði Afganistan tveim milljörðum dollara árið 2002 til þess að fjármagna uppbyggingu á fyrsta árinu eftir stríð. Til dagsins í dag hafa 90 milljónir dollara skilað sér. Sameinuðu þjóðirnar hafa nú fengið alþjóðlega endurskoðunarskrifstofu til þess að halda utan um loforð um fjárframlög sem borist hafa vegna flóðanna í Asíu. Vonandi gengur innheimtan betur að þessu sinni.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fleiri fréttir Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Sjá meira