Vilja 400 milljarða í hjálparstarf 13. október 2005 15:20
Sameinuðu þjóðirnar vilja að þjóðir heims leggi fram sem svarar 400 milljörðum íslenskra króna til hjálparstarfs á hamfarasvæðunum í Asíu. Þegar hafa safnast rúmlega 250 milljarðar. Rætt verður í dag hvernig fénu er best varið og hvernig hægt verði að tryggja að það renni raunverulega til hjálparstarfs. Síðar í dag halda Sameinuðu þjóðirnar fund í Genf með fulltrúum þeirra landa sem hafa heitið því að gefa fé til hjálparstarfs á hamfarasvæðinum. Rætt verður hvernig þeim milljörðum dollara sem safnast sé best varið til að hjálpa fórnarlömbum. Eitt stærsta áhyggjuefnið er að allt féð sem hefur verið heitið verði raunverulega greitt, og að því verði varið í þágu fórnarlambanna og ekki annars. Sameinuðu þjóðirnar vilja að framlögin nemi að minnsta kosti 400 milljörðum íslenskra króna en þegar hafa safnast rúmlega 250 milljarðar. Lögð er áhersla á að hjálpin berist fljótt. Margar þjóðir eru enn að hækka loforð sín um framlög. Á sunnudag sögðust kanadísk stjórnvöld ætla að hækka sín framlög úr fjórum milljörðum í tuttugu og tvo. En Sameinuðu þjóðirnar vilja að hver þjóð segi nákvæmlega til um hvenær féð verði látið af hendi til að koma í veg fyrir innihaldslaus loforð, eða að féð verði greitt út á jafnvel löngu árabili. PriceWaterhouseCoopers hefur verið fengið það verkefni að fylgja eftir loforðum um framlög og rannsaka allar ásakanir um svik, eyðslu eða misnotkun peninganna. Áður hefur komið fyrir að þjóðir hafi heitið framlögum sem síðan voru aldrei greidd, til dæmis þegar harður jarðskjálfti skók Bam í Íran í desember 2003. Einnig er lögð áhersla á að þjóðir heims vanræki ekki hjálparstörf og aðstoð á öðrum svæðum heimsins, eins og í Darfúr héraði í Súdan, Búrundí og í Tsjetsjeníu.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Það verða engir konungar“ Erlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Innlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent Fleiri fréttir Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Réðust á dómkirkjuna í Kænugarði Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Sjá meira