Kynferðisofbeldi konum að kenna? 14. mars 2005 00:01
Ný dönsk skoðanakönnun leiðir í ljós að fjórði hver Dani telur að konur beri stundum á því ábyrgð ef þeim er nauðgað, sérstaklega ef þær klæða sig djarflega. Athyglisvert er að fleiri konur en karlar eru á þessari skoðun. Stjórnmálamenn hafa lýst yfir undrun og áhyggjum vegna þessa. Samkvæmt könnuninni sem Catinét Research gerði fyrir Ugebrevet A4 telja heldur fleiri innflytjendur en innfæddir Danir að nauðgun geti verið konum að kenna, 31 prósent á móti 23 prósentum. Athygli vekur að konur eru frekar á þessari skoðun. Af innfæddum segja 27 prósent kvenna að djarfklæddar kynsystur þeirra bjóði hættunni heim á móti 18 prósentum karla. 35 prósent kvenna eru einnig þessarar skoðunar á móti 27 prósentum karla úr hópi innflytjenda. Stjórnmálamenn eru forviða yfir þessum niðurstöðum. Mett Fredreksen, talsmaður sósíaldemókrata í jafnréttismálum, sagði í viðtali við Berlingske Tidende að sérstakar áhyggjur vekti "hversu rótgróin þessi gamaldags karlrembuviðhorf væru". Eva Kjer Hansen jafnréttismálaráðherra tók í svipaðan streng. "Þetta er algerlega óásættanlegt. Konur ráða sjálfar yfir líkama sínum og hverju þær klæðast. Þessi rannsókn sýnir að aðgerða er þörf," sagði ráðherrann í samtali við sama blað og boðaði vitundarvakningu um þessi mál. Könnunin kemur fram mitt í umræðu um konur og viðhorf samfélagsins til þeirra sem nú standa yfir í Danmörku. Þannig kærði hópur innflytjendakvenna í síðustu viku bænaformanninn Raed Hleihel og trúarsamtök múslima fyrir niðrandi ummæli og hótyrði í sinn garð. Hann hafði látið þau ummæli falla að konur væru stundum "verkfæri djöfulsins" og að himnaríki væri lokað konum sem færu á hárgreiðslustofur og notuðu ilmvatn og andlitsfarða. Kasem Said Ahmed, formaður íslömsku trúarsamtakanna í Danmörku, sagði Hleihel hafa "fullan rétt til að kalla konur "verkfæri djöfulsins"." Að mati kærenda er með ummælum sem þessum hvatt til ólíðandi ofbeldis gegn konum.
Erlent Fréttir Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira