Öngþveiti í Madrid 14. febrúar 2005 00:01
Um tíu þúsund manns í Madríd á Spáni komust ekki til vinnu sinnar í fjármálahverfi borgarinnar í gær sökum hættunnar af frekara hruni úr háhýsinu sem brann þar til kaldra kola á laugardagskvöldið. Varð öngþveiti í borginni vegna brunans þar sem almenningssamgöngur voru takmarkaðar og um 600 þúsund manns komust ekki leiðar sinnar í gærmorgun. Windsor turninn, sem svo er kallaður, var einn af tiltölulega fáum háhýsum í höfuðborg Spánar, alls 32 hæðir og stóð í því sem af borgarbúum er gjarnan kallað fjármálahverfið þótt ekki sé um eiginlegt slíkt hverfi að ræða eins og þekkist í öðrum stórborgum í Evrópu. Stóð byggingin við eina helstu verslunarmiðstöð El Corte Inglés í Madríd en margir Íslendingar þekkja það vörumerki afar vel. Rannsóknaraðilar hófu eftirgrennslan sína í gær á upptökum eldsins en flestir hallast að því að um rafmagnsbilun hafi verið að ræða. Þó eru ekki aðrir möguleikar útilokaðir og hefur borgarstjóri Madrídar, Alberto Ruiz Gallerdon, farið fram á ítarlega rannsókn og skal öllu til kostað enda um stóran vinnustað að ræða. Enn verða rannsóknarmenn að fara varlega því talin er hætta á að burðarvirki hússins falli saman og þá er ekki spurt að leikslokum fyrir þá sem inni í húsinu eru. Þeir íbúar Madrídar sem vitni urðu að ósköpunum óttuðust í fyrstu að um skipulagða árás al-Kaída hefði verið að ræða en fáir hafa enn jafnað sig á þeim hörmungum sem þar urðu í mars á síðasta ári þegar rúmlega 200 manns létust í sprengjutilræðum á lestarstöðvum í borginni. Þess utan hafa Aðskilnaðarsamtök Baska verið að færa sig upp á skaftið að nýju eftir hlé en þau samtök hafa reglulega í um 20 ár sprengt sprengjur hér og þar í borginni oft með alvarlegum afleiðingum. Engin ákvörðun hefur verið tekin hvort reyna eigi að endurbyggja turninn aftur eða brjóta það sem eftir stendur niður og reisa nýtt hús frá grunni. - aöe
Erlent Fréttir Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Posarnir komnir í lag á ný Innlent Fleiri fréttir Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Sjá meira