KSÍ hefur grætt rúmar 6 milljónir 4. mars 2005 00:01
Knattspyrnusamband Íslands hefur verið gagnrýnt fyrir að hafa fjárfest í hlutabréfum í KB banka fyrir 100 milljónir á síðasta ári. Talað hefur verið um að áhættan sé of mikil og peningarnar ættu frekar að fara til félaganna í landinu sem sum hver berjast í bökkum. Eggert Magnússon, formaður KSÍ, sagði í samtali við Fréttablaðið að stjórn sambandsins liti á það sem skyldu sína að reyna að ávaxta fé sambandsins sem best og hún liti á þessa fjárfestingu í KB banka sem skammtímafjárfestingu. "Við munum innleysa þessi bréf á næstunni og miðað við gengi bréfanna í dag er ljóst að þessi fjárfesting skilar ágætis hagnaði," sagði Eggert. KSÍ keypti hlutabréf í KB banka fyrir um 100 milljónir í hlutabréfaútboði bankans í október á síðasta ári. Hver hlutur kostaði 480 kr þá en í gær stóð hluturinn í 512. Hann hefur hækkað um 6,25% á þessum rúmum fjórum mánuðum sem gefur KSÍ hagnað upp á rúmar sex milljónir ef sambandið myndi selja hlut sinn í dag. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins telst það vel viðunandi ávöxtun á ekki lengri tíma. "Þetta er ekki stór hluti af þeim peningum sem við erum að sýsla með og því lítum við ekki á þetta sem einhverja áhættu. Það var okkar mat að það væri betra að kaupa bréfin heldur en að geyma peningana inni á bók," sagði Eggert.
Íslenski boltinn Mest lesið Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Golf Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Fótbolti Spila æfingarleik á meðan HM stendur Fótbolti Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Golf Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Golf Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Golf Fleiri fréttir Ljósmyndarar eyðilögðu þjóðsönginn fyrir Tuchel Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Spila æfingarleik á meðan HM stendur Erfiðar aðstæður gætu hjálpað Gunnlaugi Gleði og gott veður á TM mótinu í Eyjum Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós „Að ganga í gegnum þetta gerði hann miklu sterkari“ Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Maður dagsins á HM: Borinn saman við Essien Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Stuðningsmenn baula á vatnspásurnar Liverpool sækir spænskan landsliðsmann Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Dagskráin í dag: Gunnlaugur Árni hefur leik á Opna bandaríska Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Alsíringum tekið opnum örmum í Kansas Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Þjálfaraskipti hjá Sveindísi Frábær byrjun Englendinga Komust í undanúrslit eftir framlengdan leik Sýndi miklar tilfinningar eftir fyrsta markið Þjóðhátíðarsigur á Ísafirði Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Sjá meira