Blendin viðbrögð við skipuninni 17. mars 2005 00:01
Óhætt er að segja að heimsbyggðin skiptist í tvö horn í afstöðu sinni til tilnefningar Paul Wolfowitz í embætti bankastjóra Alþjóðabankans. Þeir sem munu á endanum véla um málið eru þó hlynntir skipaninni. George W. Bush tilkynnti í fyrradag ákvörðun sína um að tilnefna Paul Wolfowitz aðstoðarlandvarnaráðherra í bankastjóraembætti Alþjóðabankans. Meginverkefni stofnunarinnar er að ráðast gegn fátækt og byggja upp efnahagslíf þróunarlandanna. Sérsvið Wolfowitz eru hins vegar varnar- og öryggismál. Þegar við bætist að hann var einn helsti skipuleggjandi innrásarinnar í Írak kom engum á óvart að tilnefningin yrði gagnrýnd. Bush upplýsti í gær að hann hefði rætt um tilnefninguna við helstu ráðamenn heimsins, til dæmis Tony Blair, Jacques Chirac og Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans. Í París var staðfest að tilnefningin "hefði verið meðtekin" en annars tjáðu ráðamenn sig þar ekki um málið. Koizumi og Jack Straw, utanríkisráðherra Breta, hafa hins vegar báðir lýst yfir ánægju sinni með Wolfowitz. Talsmenn þróunar- og hjálparsamtaka hafa hins vegar gagnrýnt tilnefninguna harðlega og jafnvel fordæmt hana. Fjölmiðlar í þriðja heiminum hafa sömuleiðis látið í ljós tortryggni. Þetta er í annað skiptið á fáeinum vikum sem Bush útnefnir harðlínumann í áhrifastöðu hjá alþjóðastofnun. Á dögunum skipaði hann John Bolton, fyrrverandi aðstoðarutanríkisráðherra, sem sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. Stjórn bankans tekur lokaákvörðun um ráðninguna og þar hafa auðugustu þjóðir heims töglin og hagldirnar. Bandaríkjamaður situr jafnan í stól bankastjóra Alþjóðabankans á meðan Evrópumaður veitir Alþjóðagjaldeyrissjóðnum forstöðu. Bandaríkin beittu neitunarvaldi í fyrra þegar stungið var upp á Þjóðverja sem forstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Gagnrýnendum til huggunar má geta þess að árið 1968 var ekki síður umdeildur maður skipaður bankastjóri. Það var Robert McNamara, varnarmálaráðherra og helsti arkitekt Víetnamstríðsins. Hann þykir einn farsælasti stjórnandi Alþjóðabankans fyrr og síðar.
Erlent Fréttir Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira