Harmleikur í Hillah 28. febrúar 2005 00:01
Í það minnsta 115 manns fórust í sjálfsmorðssprengjuárás í Írak í gærmorgun. Tilræðið er það mannskæðasta síðan landið var hernumið fyrir tæpum tveimur árum. Hryðjuverkið var framið í bænum Hillah í sunnanverðu Írak snemma í gærmorgun. Tilræðismaðurinn ók bifreið fullri af sprengiefni að heilsugæslustöð þar sem fjöldi umsækjenda um störf í lögreglunni beið eftir að komast í læknisskoðun. Sprengingin var svo öflug að nánast ekkert var eftir af bifreiðinni nema vélin. Í það minnsta 115 týndu lífi og á annað hundrað manns særðist alvarlega þannig að búast má við að tala látinna eigi enn eftir að hækka. Mikið öngþveiti skapaðist þegar reiðir ættingjar þustu á vettvang og vildu vita um afdrif ástvina sinna. Gatan var lituð blóði og sjá mátti handleggi, fætur og aðra líkamshluta liggja eins og hráviði úti um allt. Árásin er sú mannskæðasta síðan Írak var hernumið fyrir tæpum tveimur árum. Í ágúst 2003 dóu 85 manns þegar sprengja sprakk fyrir utan mosku í Najaf en í mars á síðasta ári týndu tæplega 200 manns lífi þegar margar hryðjuverkaárásir voru gerðar á sama tíma gegn sjíum í Bagdad og Karbala. Ekki er vitað hverjir standa að baki tilræðinu en þorri íbúa Hillah er sjíar. Því er talið líklegt að öfgafullir súnníar beri ábyrgð á því en þeir hafa verið stórtækir í árásum á sjía síðastliðnar vikur. Yfir hundrað sjíar dóu í sprengjuárásum á meðan Ashoura-hátíð þeirra stóð yfir í síðasta mánuði. Einnig var gerð bílsprengjuárás í gær við eftirlitsstöð lögreglu í bænum Musayyib, skammt frá Bagdad. Þar dó að minnsta kosti einn lögreglumaður og fleiri særðust. Hryðjuverkin voru framin aðeins degi eftir að sýrlensk yfirvöld handsömuðu Sabawi Ibrahim al-Hassan, hálfbróður Saddams Hussein, ásamt 29 félögum hans en al-Hassan er talinn hafa fjármagnað hermdarverk í Írak síðustu misserin. Ráðamenn víða um heim fordæmdu tilræðin harðlega í gær. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hét Írökum stuðningi sínum við að koma tilræðismönnunum á bak við lás og slá.
Erlent Fréttir Mest lesið Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Fleiri fréttir Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Sjá meira