Sport

Ljós í myrkrinu hjá Arsenal

Útlitið er orðið dökkt hjá Englandsmeisturum Arsenal í knattspyrnu um þessar mundir en þrír lykilmenn liðsins verða frá vegna meiðsla næstu vikurnar auk þess sem 3 leikmenn eru að taka út leikbönn. Í dag var ljóst að Thierry Henry getur ekki leikið með liðinu gegn Sheffield Utd í síðari leik liðanna í 16 liða úrslitum ensku bikarkeppninnar annað kvöld en hann er meiddur á hásin. Ekki er þó óttast að hann verði lengi frá en ástandið er öllu verra með aðra lykilmenn fyrir sama leik sem og seinni Meistaradeildarleikinn gegn Bayern Munchen í næstu viku. Robert Pires og Sol Campbell verða ekki með Arsenal gegn þýsku meisturunum sem leiða 3-1 eftir fyrri viðureignina. Pires er illa snúinn á ökkla og verður frá næstu 2-3 vikurnar en hann meiddist um helgina í leiknum gegn Southampton. Óttast var að Pires væri ökklabrotinn en í ljós hefur komið að svo er ekki en hann verður engu að síður frá keppni næstu 2-3 vikurnar. Þá er Campbell enn að jafna sig af ökklameiðslum og er ekki væntanlegur næstu 2 vikurnar. Arsene Wenger þjálfari er í tómum vandræðum með sóknarlínuna fyrir komandi leiki en Robin van Persie, Dennis Bergkamp og Jose Antonio Reyes eru allir í leikbanni heima fyrir. Þar að auki hefur Jeremie Aliadiere ekki enn náð sér af meiðslum sem hafa hrjáð hann síðustu 6 mánuði. Það lítur því út fyrir að annað hvort hinn 18 ára Quincy Owusu-Abeyie eða 17 ára Arturo Lupoli muni leiða sókn Arsenal gegn  Sheff Utd annað kvöld. Um er að ræða seinni leik liðanna en Championship deildar liðið tryggði sér aukaleik með jöfnunarmarki á lokamínútu fyrri leiks liðanna 19. febrúar sl. Arsenal sem vermir 3. sætið í úrvalsdeildinni missti Man Utd enn frekar fram úr sér í deildinni um helgina eftir jafntefli við Southampton og ljóst er að það verður erfitt verkefni að vinna upp 2 marka tap gegn Bayern Munchen í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×