Árásin í Tel Aviv verk Sýrlendinga 28. febrúar 2005 00:01
Ísraelar fullyrða að Sýrlendingar hafi gefið fyrirskipun um hryðjuverkaárás í Tel Aviv um helgina. Fimm manns létu lífið og friðarferlið er í hættu. Það standa öll spjót á Sýrlendingum. Bandaríkjamenn saka þá um að senda hryðjuverkamenn yfir landamærin til Íraks, Líbanar segja að þeir hafi myrt fyrrverandi forsætisráðherra sinn, Rafik Hariri, og nú segja Ísraelar að Sýrlendingar beri ábyrgð á sprengjuárásinni sem gerð var í Tel Aviv um síðustu helgi. Árásin varð til þess að Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, varaði Palestínumenn við því að friðarferlið væri í hættu tækist þeim ekki að hafa hemil á hryðjuverkamönnum. Árásin kom á óvart því helstu samtök hryðjuverkamanna í Ísrael höfðu lýst því yfir að þau myndu virða vopnhléið sem þeir Mahmoud Abbas og Ariel Sharon tilkynntu um í Egyptalandi á dögunum. Ísraelar segjast nú hafa upplýsingar um að ákvörðun um ódæðið hafi verið tekin utan landamæra Ísraels. Shimon Peres, aðstoðarforsætisráðherra Ísraels, segir að samkvæmt upplýsingum Ísraela hafi skipanir um árásina í Tel Aviv komið frá Damaskus í Sýrlandi. Stjórnvöld í Ísrael telji þetta ekki réttan grundvöll fyrir friði. Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, ber sig illa undan þessum ásökunum. Hann segir Bandaríkjamenn nú farna að beita Sýrland sams konar þrýstingi og þeir beittu Írak áður en þeir gerðu árás inn í landið árið 2003. Við þetta má bæta að ríkisstjórn Líbanons sagði öll af sér í dag eftir fjöldamótmæli vegna morðsins á Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra. Ríkisstjórnin þótti mjög vinsamleg Sýrlendingum.
Erlent Fréttir Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira