Árið 2005 eitt mesta hamfaraár sögunnar 1. desember 2005 07:00 Erfitt ár. Fórnarlömb jarðskjálftanna í Pakistan eru á meðal þeirra sem þurft hafa á aðstoð SÞ að halda. Samtökin fóru í gær fram á 265 milljarða aðstoð en sú upphæð jafngildir hernaðarútgjöldum heimsins á tveimur dögum.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, fór í gær fram á 265 milljarða króna framlag frá ríkjum heims til að aðstoða þrjátíu milljónir manna í 26 ríkjum í öllum heimshornum þar sem neyðarástand ríkir. Árið 2005 hefur verið sannkallað hamfaraár og hafa SÞ aldrei þurft að bregðast jafn oft við ákalli frá bágstöddum. "Árið sem er að líða hefur verið hræðilegt fyrir fórnarlömb náttúruhamfara," sagði Annan þegar hann fylgdi eftir ávarpi sínu í gær. "Engu að síður var líka sýnt fram á hve rausnarleg við getum verið. Margir þjást þótt þjáningar þeirra hafi ekki vakið athygli heimsins. Ákallið um mannúðaraðstoð að þessu sinni er tækifæri til að aðstoða þetta fólk." Annan bætti því við að upphæðin væri ekki ýkja há væri litið til þeirra verkefnanna fram undan. "Raunar er hún lægri en sú upphæð sem rennur til herja veraldarinnar á tveimur sólarhringum." Í fréttatilkynningu frá SÞ segir að þótt árið sé ekki liðið hafi 2005 þegar fengið nafnbótina hamfaraár. Í ársbyrjun þurfti að bregðast við flóðöldunni á Indlandshafi en í árslok er hlúð að fórnarlömbum jarðskjálftanna í Suður-Asíu. Hungursneyð í Níger, óöryggi í fæðuöflun í Afríku sunnan Sahara og skæðustu fellibyljir á Atlantshafi sem um getur hafa einkennt árið. SÞ hafa tíu sinnum þurft að kalla eftir neyðaraðstoð í skyndi en það er met. Jan Egeland, aðstoðarframkvæmdastjóri mannúðar- og neyðaraðstoðar SÞ, bendir á að flestar þessara hörmunga eigi sér stað utan kastljóss fjölmiðlanna, aðeins einar eða tvennar hamfarir nái athygli heimsis á ári. "Fjármögnun mannúðaraðstoðar þyrfti að vera fyrirsjáanlegri og jafnari og fleiri þyrftu að láta fé af hendi rakna." Samtökin hafa þegar tekið saman beiðnir fyrir næsta almanaksár og er gert ráð fyrir að fjórtán ríki eða svæði þurfi á aðstoð að halda.
Erlent Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Sjá meira