Blair í pólitískum forarpytti 10. mars 2005 00:01
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, er lentur í pólitískum forarpytti og virðist ekki ætla að geta komið umdeildu frumvarpi sínu um hertar aðgerðir gegn hryðjuverkum í gegnum breska þingið. Málið þykir sýna svart á hvítu að kosningabaráttan í Bretlandi er nú hafin fyrir alvöru. Breska ríkisstjórnin hefur nú í marga daga reynt að ná í gegn frumvarpi sem snýst um varnir gegn hryðjuverkum. Illa gengur enda er frumvarpið afar umdeilt bæði innan Verkamannaflokksins sem utan. Málið snýst einfaldlega um þetta: Ef ekki eru fyrir hendi nægjanleg sönnunargögn til að ákæra menn sem eru grunaðir um einhvers konar tengsl við hryðjuverkasamtök, hvað, ef eitthvað, má þá gera við þá? Nýja frumvarpið heimilar nefnilega yfirvöldum að takmarka það hverja þessir menn hitta eða ræða við í síma eða í tölvupósti. Þá yrði einnig heimilt að hneppa þá í stofufangelsi á eigin heimili. Í þessari umræðu allri kristallast sú grundvallardeila sem upp er komin eftir hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum þann 11. september, það er hversu mikið stjórnvöld geta gengið á réttindi og frelsi almennings í þeim tilgangi að tryggja hugsanlegt öryggi ríkisins og þjóðarinnar allrar. Tony Blair sjálfur hefur umsnúist í afstöðu sinni því í upphafi stjórnmálaferils síns var hann mikill talsmaður lýðréttinda. Nú bregður hins vegar svo við að öryggismálin eru komin á oddinn hjá honum og hann segir að öryggis- og varnarmál verði einmitt eitt af helstu kosningamálunum í Bretlandi í vor þegar gengið verður til þingkosninga. Tíu menn sem eru grunaðir um einhvers konar tengsl við al-Qaida samtökin eru nú í haldi í bresku fangelsi. Núverandi lög gegn hryðjuverkum, sem sett voru tímabundið eftir 11. september, heimila að þeim sé haldið án ákæru. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur reyndar úrskurðað að þessi lög brjóti gegn almennum mannréttindum og þau falla líka úr gildi nú um helgina. Ef ekki verður búið að samþykkja nýja frumvarpið gæti svo farið að stjórnvöld yrðu að láta mennina lausa.
Erlent Fréttir Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Uppsagnir leggjast þungt á Vopnafjörð Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Fleiri fréttir „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Sjá meira