David Beckham til liðs við UNICEF 12. janúar 2005 00:01
Nýskipaður velgjörðarsendiherra UNICEF, David Beckham, mun taka þátt í sjónvarpsherferð Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna til stuðnings fórnarlömbum flóðanna í löndunum við Indlandshaf. Til að tryggja að þörfum barna verði mætt næstu sex mánuði áætlar UNICEF að það kosti rúma 9 milljarða íslenskra króna. En mörg börn eru munaðarlaus eða hafa orðið viðskila við fjölskyldu sínar og þurfa á mikilli umhyggju og stuðningi að halda. Stuðningur Beckhams mun koma til með að styðja neyðarhjálp og langtíma þróunaraðstoð. Beckham heimsótti birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn síðastliðinn mánudag og kynnti sér starfið þar. Birgðarstöðin er mikilvægur hlekkur í neyðaraðstoð UNICEF og gerir það að verkum að UNICEF getur brugðist skjótt við neyðaraðstæðum. Þar eru hjálpargögn pökkuð og send innan 48 tíma til barna sem þarfnast aðstoðar. Á meðal þess sem sent er til flóðasvæðanna eru sérhannaðir sjúkrapakkar, mislingasprautur, vatnshreinsunar-pakkar, skólapakkar og íþróttapakkar. "Ég, líkt og flestir aðrir, var mjög hreyfður vegna frétta af áhrifum flóðbylgjunnar. Svo ótrúlega margir hafa misst ástvini sína og sérstaklega hafa börn þjáðst mjög þar sem yfir milljón þeirra eru hjálparþurfi og eiga á hættu að fá banvæna sjúkdóma. Fólk hefur sýnt ótrúlegt gjafmildi hingað til og það er mjög áríðandi að fólk haldi áfram að gefa peninga til hjálparsamtaka eins og UNICEF til að leggja sitt af mörkum við neyðaraðstoð og endurbyggingu. Að vera skipaður velgjörðarsendiherra UNICEF er ein af mikilvægustu stundum lífs míns og ég vona að ég geti tekið þátt í að styðja börn í neyð," sagði David Beckham. Ein af aðaláherslum UNICEF er að koma börnum aftur í skóla eins fljótt og hægt er svo þau geti betur tekist á við áfallið sem hamfarirnar ollu. Íþróttir og leikir eru viðurkennd áfallahjálp fyrir börn sem hafa lent í stríði eða náttúruhamförum og í íþróttapökkunum eru tæki fyrir 40 börn til að taka þátt í leikjum og hópíþróttum. Sem velgjörðarsendiherra mun Beckham leggja sérstaka áherslu á íþróttastarf með börnum og á mikilvæg áhrif íþrótta til að bæta líf barna, sér í lagi þeirra sem lifa við fátækt, sjúkdóma eða stríð. David Beckham mun deila vitneskju sinni og hæfileikum sem íþróttamaður með sérfræðingum UNICEF í þróun á þessu mikilvæga verkefni. David Beckham hefur stutt við UNICEF í langan tíma en hann var kynntur fyrir UNICEF þegar hann var í Mancester United og hefur félagið safnað rúmlega 1,2 milljón punda fyrir UNICEF í gegnum átakið „United for UNICEF“. Beckham gengur til liðs við fjölmarga vel þekkta velgjörðarsendiherra, þar á meðal íslandsvininn Harry Belafonte, Sir Roger Moore, Miu Farrow, Susan Sarandon, Jeminu Khan, Robbie Williams og Ewan McGregor sem hafa öll gefið tíma sinn og orku til að safna peningum og vekja athygli á störfum UNICEF fyrir hönd barna um allan heim.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Á fjórða hundrað hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Erlent Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Innlent Fleiri fréttir Á fjórða hundrað hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming Sjá meira