Aðþrengd eiginkona í Hvíta húsinu 1. maí 2005 00:01
Aðþrengd eiginkona truflaði eiginmann sinn gróflega í gærkvöldi þegar hann ætlaði að segja sama gamla brandarann í enn eitt skiptið. Þetta teldist tæpast til tíðinda væri eiginkonan sem um ræðir ekki Laura Bush, eiginkona Bush Bandaríkjaforseta. Laura Bush lætur venjulega lítið fyrir sér fara en í gærkvöldi varð skyndilega breyting þar á og það fyrir framan blaðamannaelítuna í Washington. Þegar Bush forseti hugðist segja brandara sagði hún: „Ekki þennan enn einu sinni." Hún sagði svo að þetta yrði gaman því forsetinn hefði ekki hugmynd um hvað hún ætlaði að fara að segja. Hún hóf mál sitt á því að segja að eiginmaðurinn segðist hæstánægður með að koma í kvöldverðarboð blaðamanna en það væri kjaftæði. Hann væri venjulega kominn í háttinn á þessum tíma. Laura sagðist svo hafa sagt við George um daginn að ef hann vildi binda enda á harðstjórn í heiminum yrði hann að vaka lengur. Svo lýsti hún dæmigerðu kvöldi hjá þeim hjónum og sagði að um klukkan níu væri Bandaríkjaforseti steinsofnaður og að hún horfði á Aðþrengdar eiginkonur með Lynne Cheney, eiginkonu Dicks Cheneys varaforseta. Því næst játaði hún að hún væri aðþrengd eiginkona. Laura sagðist enn fremur vera stolt af eiginmanni sínum. Hann hefði lært heilmikið á búgarði fjölskyldunnar í Texas frá því að hann reyndi á fyrsta ári að mjólka eitt hrossið, en það hafi verið hestur en ekki hryssa. Nú snyrti hann runna og felldi tré, eða eins og dætur hennar kölluðu það: The Texas Chainsaw Massacre. Svar Bandaríkjarforseta við öllum vandamálum á búgarðinum væri að saga það niður með keðjusög. Þess vegna kæmi honum svo vel saman við Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra og Cheney varaforseta.
Erlent Fréttir Mest lesið Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Innlent Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Innlent Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Innlent ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Erlent Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Innlent Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Innlent Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Innlent Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Innlent Witkoff fundar með Selenskí Erlent „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Innlent Fleiri fréttir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Þingið ítrekar stuðning Bandaríkjanna við Evrópu Bandaríkjamenn leggja hald á olíuflutningaskip undan ströndum Venesúela Heimila nú birtingu gagna úr rannsókn á Epstein Telur það landráð að skrifa um heilsu sína Sætir líflátshótunum og nær ekki að veita friðarverðlaununum viðtöku Vilja skoða samfélagsmiðla íslenskra ferðamanna Fyrirskipa notkun Times New Roman í stað Calibri Selenskí segist reiðubúinn til að boða til kosninga Samfélagsmiðlabannið hefur tekið gildi í Ástralíu Forsetafrúin kallaði mótmælendur heimskar tíkur Blaðamannafundi aflýst og óvíst hvort Nóbelsverðlaunahafinn mæti Heimilar birtingu gagna úr rannsókn á Maxwell Sjá meira