30 manns falla daglega 12. febrúar 2005 00:01
Írösku kosningarnar eru afstaðnar en ekkert lát er á bardögum og voðaverkum. Það sýna atburðir síðustu daga. Á aðeins einni viku hafa rúmlega 200 manns látið lífið, flestir í árásum vígamanna en aðrir í bardögum vígamanna við bandaríska hermenn og íraska þjóðvarðliða. 36 manns hið minnsta létust í gær. Flestir fórust í bílsprengjuárás við sjúkrahús í Musayyab, bæ sextíu kílómetra suður af Bagdad þar sem meirihluti íbúanna eru sjíamúslimar. Hann er hins vegar á svæði þar sem búa hvort tveggja sjíar og súnníar og mikið er um árásir vígamanna úr röðum súnní-múslima. Sautján manns létust í árásinni í gær. Bardagar milli vígamanna og bandaríska hermanna í Mosul reyndust mannskæðir. Níu vígamenn létust sem og tvær konur þegar sprengjur frá bardögunum lentu á heimilum þeirra. Þá fundust lík sex íraskra þjóðvarðliða og sex kúrdískra öryggisvarða í borginni. Þeim hafði verið rænt, þeir bundnir og skotnir. Borgin er fjarri því griðastaður fyrir íraska lögreglumenn og þjóðvarðliða. Fyrr í vikunni létust tólf lögreglumenn í sjálfsmorðsárás og í desembermánuði einum fundust lík 150 lögreglumanna og þjóðvarðliða í borginni. Mannfallið í Írak hefur verið mikið í vikunni og aðeins einu sinni farið undir tuttugu manns. Það var á miðvikudag þegar minnst níu manns létu lífið. Mest var mannfallið á fimmtudag þegar 50 manns létu lífið í bardögum og árásum.
Erlent Fréttir Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Sjá meira