Leiðtogi Kosovo-Albana til Haag 8. mars 2005 00:01
Forsætisráðherra Kosovo-Albana, Ramush Haradinaj, sagði af sér í gær eftir að honum var birt ákæra fyrir meinta stríðsglæpi. Í ákærunni, sem Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna í Haag gaf út, er Haradinaj sakaður um að hafa átt þátt í voðaverkum í stríði Kosovo-Albana við Serba 1998-1999, en á þeim tíma var hann hernaðarlegur leiðtogi Frelsishers Kosovo, uppreisnarhreyfingar Kosovo-Albana. Haradinaj lýsti því yfir í gær að hann myndi gefa sig fram við réttinn í Haag í dag. Klofningur milli þjóðernishópa er enn mjög djúpstæður í Kosovo, sex árum eftir að stríðinu þar lauk. Ákvörðunin um að ákæra Haradinaj er álitinn mikilvægur liður í tilraunum Sameinuðu þjóðanna, sem enn fara með yfirstjórn Kosovo, til að græða sárin eftir stríðið. Kosovo-Albanar líta flestir á Haradinaj sem hetju en Kosovo-Serbar hata hann. Að svo komnu máli gáfu hvorki Haradinaj né fulltrúar dómstólsins nánar upp hver ákæruatriðin væru. Søren Jessen-Petersen, æðsti fulltrúi SÞ í Kosovo, fagnaði ákvörðun Haradinajs en sagði að brotthvarf hans myndi "skilja eftir stórt skarð" í stjórnmálaferlinu þar. Hann hvatti alla hlutaðeigandi til stillingar.
Erlent Fréttir Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira