Tímamótaávarp frá Rice 8. febrúar 2005 00:01
Allir viðmælendur Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á Ítalíu veiktust og afboðuðu fundi sína með henni í morgun. Búist er við tímamótaávarpi frá henni í París síðdegis. Rice er í Róm og ætlaði þar að hitta Silvio Berlusconi forsætisráðherra og Jóhannes Pál páfa II að máli. Nú ber svo við að páfi er á sjúkrahúsi og því ekki fundafær og í morgun var greint frá því að Berlusconi væri lagstur í rúmið með flensu. Rice fundaði því með æðsta embættismanni Páfagarðs, Angelo Sodano, í morgun og hitti Gianfranco Fini, utanríkisráðherra Ítalíu, stuttlega að máli. Hún flýgur síðdegis til Parísar. Ræðu hennar þar er beðið með nokkuri eftirvæntingu því að þar er búist við því að heyra megi þann tón sem stjórn Bush Bandaríkjaforseta hyggst láta kveða við í samskiptum við Evrópuríki, einkum það sem Rumsfeld varnarmálaráðherra kallaði „gömlu Evrópu“. Ferð Rice er einnig frumsýning og er til þess ætluð að undirstrika þann mun sem er á henni og forveranum, Colin Powell. Ekki er nóg með að Rice njóti trausts forsetans, sé vinur hans og náinn ráðgjafi, ólíkt Powell. Hún ætlar sér líka að ferðast meira en hann en Powell er meðal þeirra bandarísku utanríkisráðgjafa sem minnst ferðuðust á meðan hann var í embætti. Reyndar er hermt að Rice sé svo mikið í mun að sýna og sanna hvað í hana er spunnið að þegar sama dag og tilkynnt var um tilnefningu hennar í nóvember á síðasta ári hafi verið lögð fram drög að aðgerðaáætlun fyrir fyrsta hálfa árið eða svo, þar á meðal miklar ferðaáætlanir sem hún er sjálf sögð eiga meginheiðurinn að. Hluti þessara áætlana gæti fallið vel í kramið í „gömlu Evrópu“: hún hyggst koma við í menningarstofnunum nánast alls staðar en sjálf er hún fær píanóleikari. Og skipulagningin nær ekki einungis til slíkra áætlana; hvert orð sem hún segir er sagt vera úthugsað. Til að mynda vakti athygli þegar hún sagði að engar áætlanir væru um að ráðast inn í Íran - en bætti við: „Að svo stöddu.“
Erlent Fréttir Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Sjá meira