Afsögn páfa hugsanleg 8. febrúar 2005 00:01
Afsögn páfa er hugsanleg. Æðsti embættismaður Páfagarðs léði í gærkvöldi máls á því og olli með því töluverðu uppnámi. Páfi hefur um hríð verið veikburða og nú er liðin rúm vika frá því að hann var lagður inn á sjúkrahús vegna hálsbólgu. Ítrekað hefur vaknað grunur um að hann liggi banaleguna og þó að því hafi verið neitað ganga sögusagnirnar áfram. Það kann að vera ástæða þess að háttsettir embættismenn í Páfagarði ræða nú um hvort að best væri ef Jóhannes Páll léti af embætti svo að kaþólska kirkjan beri ekki skaða af umræðunni. Angelo Sodano, sem er hæstráðandi í Páfagarði í fjarveru páfa og einn hugsanlegra eftirmanna, var í gærkvöldi spurður hvort hann teldi afsögn koma til greina. Sodano hefur hingað til brugðist illa við slíku tali og vísað því á bug en sagði í gærkvöldi að það væri páfa sjálfs að taka ákvörðun um slíkt - og að hann yrði að eiga það við samvisku sína. Þetta er í fyrsta sinn sem einhver innan Páfagarðs svarar fyrirspurn af þessu tagi með einhverju öðru en neitun. Segi Jóhannes Páll páfi af sér yrði það í fyrsta sinn í 700 ár sem slíkt gerist en sjálfur hefur hann þvertekið fyrir allt slíkt og spurt hvort að Kristur hafi stigið niður af krossinum. Engu að síður greinir breska dagblaðið Times frá því að hann hafi skilið eftir afsagnarbréf hjá Sodano og hirðstjóra Páfagarðs, sem þeir eiga að nota komi einhvern tíma til þess að hann sé andlega ófær um að sinna starfanum.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Sjá meira