Öfgamenn komi í stað Maskhadovs 9. mars 2005 00:01
Líklegt er að morð rússneskra hermanna á Aslan Maskhadov, leiðtoga tsjetsjenskra uppreisnarmanna, í gær hleypi frekari hörku í aðgerðir aðskilnaðarsinnaðra Tsjetsjena. Maskhadov var talsmaður hófsamra Tsjetsjena og nú er talið að öfgasinnaðir hryðjuverkamenn nái völdum. Samkvæmt rússneskum stjórnvöldum var Aslan Maskhadov ótýndur hryðjuverkamaður og réttdræpur sem slíkur. Það er þó umdeilt og margir segja að hann hafi aðeins verið uppreisnarmaður eða skæruliði í réttmætri sjálfsstæðisbaráttu Tsjetsjena enda hafi hann ætíð fordæmt hryðjuverkaárásir öfgasinnaðra Tsjetsjena, meðal annars árásina á leikhúsið í Moskvu og barnaskólann í Beslan. Maskhadov, sem leiddi fyrstu uppreisn Tsjetsjena árið 1994 og var í kjölfarið kjörinn forseti Tjsetjeníu, var ötull talsmaður þess að Tsjetsjenar og Rússar settust niður til friðarviðræðna og víst er að með falli hans er einn aðaltalsmaður hófsamra Tsjetsjena úr leik. Aleksei Moloshenko, rússneskur fréttskýrandi, telur að þar sem hinn hófsami Maskhadov sé fallinn frá verði Rússar varir við róttækari aðgerðir því nú sé aðeins einn pólitískur og hernaðarlegur leiðtogi í Tsjetsjeníu, Samil Basajev, og hann sé í raun bara hryðjuverkamaður. Uppreisnarmenn ætla að velja eftirmann Maskhadovs á næstu dögum og fréttaskýrendur óttast einmitt að annaðhvort Basajev eða aðstoðarmaður hans, Doku Umarov, sem er álíka öfgasinnaður, verði fyrir valinu. Morðið á Maskhadov er því skammgóður vermir fyrir Vladímír Pútín Rússlandsforseta. Það er líklegt að vinsældir hans aukist tímabundið vegna þessa en lausn Tsjetsjeníudeilunnar virðist hins vegar aðeins verða fjarlægari.
Erlent Fréttir Mest lesið Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Innlent Tollarnir tilefni til hvorra tveggja örvæntingar og léttis Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Erlent Vörðuóðir ferðamenn fremji náttúruspjöll Innlent Tveir fluttir með þyrlunni og fjórir með sjúkrabíl Innlent Þrýstu á yngsta sakborninginn um að taka á sig alla sök Innlent Segist eiga fund með Pútín Erlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Ekki eigi að gera einstaklinga ábyrga fyrir gerðum ríkisstjórnar Innlent Fleiri fréttir Segist eiga fund með Pútín Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Fimm hermenn skotnir á herstöð Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Stefnir í kjördæmastríð í Bandaríkjunum? Nýr forseti Póllands vill draga úr áhrifum ESB Stendur í vegi rannsóknar á milljarða svikamyllu Birtist óvænt á þaki Hvíta hússins Yfir 400.000 tilkynningar um kynferðisofbeldi Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Sjá meira