Ísraelsríki studdi landtöku 9. mars 2005 00:01
Rannsókn á því hvernig staðið var að stofnun alls um 105 landtökubyggða gyðinga á Vesturbakkanum leiddi í ljós að ísraelsk stjórnvöld voru viðriðin landtökuna með margvíslegum hætti. Í niðurstöðu rannsóknarinnar, sem gerð var með stuðningi Ísraelsstjórnar, er mælt með því að saksóknarar íhugi að taka til rannsóknar þátt sumra þeirra sem komið hefðu við þessa sögu. Talia Sasson, fyrrverandi ríkissaksóknari Ísraels, stýrði rannsókninni, en hún kynnti helstu niðurstöðurnar á blaðamannafundi í Jerúsalem. Sasson sagði "róttæk skref" nauðsynleg til að bæta úr og vernda stoðir ísraelsks lýðræðis. Í skýrslunni er lýst leynilegu samráði og samstarfi hinna ýmsu ráðuneyta og opinberu stofnana um að koma fé og öðrum stuðningi til landtökumanna. Ísraelskir landtökumenn hófu fyrir rúmum áratug að reisa nýjar gyðingabyggðir á Vesturbakkanum, með það fyrir augum að rjúfa landfræðilega heild palestínska yfirráðasvæðisins og hindra stofnun sjálfstæðs Palestínuríkis. "Jafn alvarleg lögbrot af hálfu svo margra opinberra aðila eru ekki til annars fallin en að grafa undan lýðræðislegu stjórnarfari í Ísrael og verðskuldar að vera fordæmt," sagði Sasson. Sasson lét ógert að benda á nafngreinda ráðamenn í þessu sambandi. Spurð sérstaklega um hlutverk Ariels Sharon forsætisráðherra, sem á sínum tíma var einn helsti formælandi landtökunnar, vék hún sér undan að svara og sagði skýrsluna ekki fjalla um ábyrgð nafngreindra einstaklinga. Sem utanríkisráðherra hafði Sharon árið 1998 hvatt landtökumenn til að reisa nýjar byggðir á hæðum Vesturbakkans. Mest varð gróskan í landtökunni eftir að hann varð forsætisráðherra árið 2001. Ísraelsstjórn tekur skýrsluna til umræðu á sunnudag og talsmenn Sharons sögðu hann ekki myndu ákveða fyrr en þá hvernig bregðast skyldi við henni.
Erlent Fréttir Mest lesið Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Fleiri fréttir Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Sjá meira