Tsjetsjenar berjast áfram 9. mars 2005 00:01
Tsjetsjenskir uppreisnarmenn hétu því í gær að halda áfram baráttunni fyrir algerum aðskilnaði Tsjetsjníu frá Rússlandi, eftir að það fréttist í fyrradag að leiðtogi þeirra, Aslan Maskhadov, hefði fallið eftir að rússneskir sérsveitarmenn umkringdu hann á felustað sínum í norðanverðri Tsjetsjníu. Á rússneska þinginu var dauða Maskhadovs fagnað sem merki um að Rússar væru á réttri leið í sínu stríði gegn hryðjuverkum, sem beinist aðallega gegn íslömskum uppreisnarmönnum og aðskilnaðarsinnum í Tsjetsníu og öðrum landamærahéruðum Rússlands í suðri. Yfirmaður rússnesku leyniþjónustunnar FSB tilkynnti Vladimír Pútín forseta í gær að Maskhadov hefði fallið í áhlaupi sérsveita í bænum Tolstoy-Yurt. Erindreki Maskhadovs í Lundúnum, Akhmed Zakayev, staðfesti að skæruliðaleiðtoginn væri allur. ITAR-Tass-fréttastofan rússneska hafði síðar eftir yfirmanni rússneska herliðsins í Tsjetsjníu, Grígorí Fomenko, að búið væri að bera formlega kennsl á lík Maskhadovs. Skæruliðar hétu því að halda hinni vopnuðu baráttu áfram. Með "ofbeldisfullum dauðdaga [Maskhadovs] er nýtt tímabil hafið í sögu hernaðarlegrar glímu Rússa og Tsjetsjena, sem útilokar ekki aðeins samningaviðræður, heldur setur stríðinu engar hömlur," var haft eftir Movladi Udugov, hugmyndafræðingi aðskilnaðarsinna, á vefsíðu sem þeir halda úti. Af leiðtogum Tsjetsjena þótti Maskhadov maður hófseminnar í samanburði við menn eins og Shamil Basajev, harðan wahhabi-múslima sem lýst hefur ábyrgð á fjölda skæðra hryðjuverka, þar á meðal í skólanum í Beslan í fyrrahaust og í leikhúsi í Moskvu árið 2002. Líklegt þykir því að dauði Maskhadovs hleypi enn meiri hörku í átökin í Tsjetsjníu.
Erlent Fréttir Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira