Halda áfram baráttunni 9. mars 2005 00:01
Tsjetsjenskir uppreisnarmenn segja að morðið á leiðtoga þeirra Aslan Maskhadov, muni engin áhrif hafa á aðskilnaðarbaráttuna og vopnaða uppreisn þeirra gegn rússneskum yfirvöldum í Tsjetsjeníu. Maskhadov, sem var hófsamastur tsjetsjenskra uppreisnarmanna, var ráðinn af dögum í gær af rússneskum hermönnum. Fregnir af atburðinum eru óljósar en svo virðist sem rússneskar hersveitir hafi fengið þau fyrirmæli að ráðast inn í tsjetsjenska þorpið Tolstoy Yurt skammt frá Grosní í gær og handtaka Maskhadov. Aðstoðarforsætisráðherra Tsjetsjeníu, sem rússnesk stjórnvöld skipuðu, segir að það hafi átt að ná Maskhadov lifandi en lífverðir hans hafi hins vegar klúðrað málunum og því hafi Maskhadov verið drepinn. Maskhadov leiddi uppreisn Tsjetsjena og hafði sigur í stríðinu gegn Rússum á árunum 1994 til 1996 og var í kjölfarið kjörinn forseti Tsjestjeníu árið 1997. Maskhadov var þyrnir í síðu Pútíns Rússlandsforseta sem bolaði honum frá völdum þegar hann sendi rússneskar hersveitir aftur inn í Tsjetsjeníu árið 1999. Æ síðar hefur blóðug og grimmileg borgarastyrjöld geisað í héraðinu. Maskhadov var ætíð talinn einna hófsamastur af leiðtogum tsjetsjenskra uppreisnarmanna. Hann fordæmdi hryðjuverk annarra uppreisnarmanna eins og til dæmis mannránið í barnaskólanum í Beslan og kallaði ítrekað eftir samningaviðræðum við Rússa. Síðast fyrir viku síðan var haft eftir honum að það eina sem þyrfti til að leysa deiluna í Tsjetsjeníu væru hálftíma drengilegar viðræður á milli sín og Pútíns Rússlandsforseta. Pútín hefur hins vegar ætíð hafnað því að ræða málin við Maskhadov og segist ekki tala við hryðjuverkamenn. Akhmed Zakajev, sem nú er aðaltalsmaður uppreisnarmanna, segir að eftirmaður Maskhadovs verði valinn á næstu dögum. Fráfall hans hafi engin áhrif á uppreisnina sem haldi áfram.
Erlent Fréttir Mest lesið Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Innlent Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Innlent Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Innlent Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Innlent Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Innlent Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Innlent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ Innlent Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Innlent Fleiri fréttir Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Yfir hundrað látnir í Texas Ellefu dagar milli nýrra jarðganga í Færeyjum Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Pútín rekur samgönguráðherrann eftir miklar raskanir á flugi Eldgos í Lewotobi Laki Laki í Indónesíu Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum Á níunda tug látin í hamfaraflóðum Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Banamaður ráðherra fær að stíga fæti út fyrir fangelsið Um sjötíu látnir í flóðunum og stúlknanna enn leitað Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Tuttugu og fimm stúlkna saknað úr sumarbúðum vegna flóða Minnst þrettán látnir og tuttugu barna saknað eftir flóð í Texas Rússar sagðir nota efnavopn í Úkraínu í auknum mæli Tveir ferðamenn létust í fílaárás í Sambíu Sjá meira