Hótelrekstur aflagður í Valhöll? 24. apríl 2005 00:01
Hótel Valhöll á Þingvöllum hefur verið lokað frá áramótum. Þingvallanefnd vill leggja hótelrekstur af að mestu en forsætisráðuneytið hefur hins vegar boðið reksturinn út að nýju, til hausts 2010. Mikil rómantík er tengd Hótel Valhöll á Þingvöllum, kannski ekki síst hjá eldri kynslóðinni. Elías Einarsson rak Hótel Valhöll í tæp þrjú ár en hætti eftir jólin í fyrra, nokkru áður en samningstíma hans lauk, því hann var búinn með fjármagnið sem hann gat lagt í þetta og rúmlega það. Elías telur hins vegar að það sé grundvöllur fyrir hótelrekstri á Þingvöllum. Það þurfi fjármagn og ekki síst tíma, það er, langtímasamning um reksturinn. Nokkru eftir að Elías hætti auglýsti ríkið eftir öðrum rekstraraðila og rann umsóknarfrestur út í síðustu viku. Fjölmargir komu að skoða en aðeins einn lét slag standa og sótti um. Ekki fer á milli mála að heilmikið þarf að gera við byggingu Valhallar ef úr á að verða fyrsta flokks hótel. Óskað var eftir tillögum um framtíðaruppbyggingu Valhallar og mun sá sem sótti um funda með málsaðilum í forsætisráðuneytinu á morgun og athuga hvort fallist verði á þær. Þingvallanefnd leggur til í sinni stefnumótun fyrir þjóðgarðinn að hótelrekstur verði að mestu aflagður, en í Valhöll geti verið veitingasala og aðstaða fyrir ráðherra og þingmenn að funda og taka á móti gestum. Halldór Árnason, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, segir framtíð hótelsins vera til skoðunar en samningurinn sem nú er í boði gildir til hausts 2010, svo ef samningar nást mun líklega lítið breytast fram að því.
Fréttir Innlent Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira