Hættulegt liðagigtarlyf 19. desember 2004 00:01
Varað er við lyfinu Celebra, sem notað er við liðagigt, þar sem það eykur líkurnar á kransæðastílfu og heilablóðfalli. Landlæknir ráðleggur fólki sem notar lyfið að ræða við lækninn sinn. Bandaríska matvæla- og lyfjastofnunin ráðleggur læknum að vísa á önnur lyf en Celebra þar sem rannsókn leiddi í ljós aukna hættu á kransæðastíflu og heilablóðföllum meðal þeirra sem tóku lyfið. Stutt er síðan lyfjaframleiðandinn Merch varð að taka sambærilegt lyf, Vioxx, af markaði þar sem það hafði sömu áhrif. Pfizer, sem framleiðir Celebra, sem heitir Celebrex í Bandaríkjunum, ætlar hins vegar að halda áfram sölu lyfsins. Ekki eru allir sáttir við það. Talsmenn neytendasamtaka og eftirlitsshópa segja matvæla- og lyfjastofnunina fá hundruð milljóna dollara í framlög frá lyfjaframleiðendum árlega, sem hljóti að leiða til þess að stofnunin fari sér hægt og varlega þegar kemur að því að banna lyf - þó að réttast væri að gera það reynist lyfið hættulegt. Öldungardeildarþingmaðurinn Chuck Grassley segir að þess sé vænst að Lyfjaeftirlitið setji ekki lyf á markað sem ekki séu örugg. „Það er ekki hægt að gera málamiðlun um öryggi, sama hversu mikill þrýstingur er um að koma fleiri lyfjum á markað,“ segir Grassley. Hér á landi hafa Vioxx og Celebra skipt með sér markaðnum fyrir lyf sem kölluð hafa verið ný gigtarlyf, eða cox-2 lyf. Landlæknisembættið og Lyfjastofnun hafa undanfarna mánuði ráðlagt læknum að gæta sérstakrar varúðar varðandi varðandi þau cox-2 lyf sem eftir eru á markaði, einkum hjá fólki með hjarta- og æðasjúkdóma eða þeim sem eru í sérstökum áhættuhópi að fá slíka sjúkdóma og nota þau eingöngu ef fólk þolir ekki eldri lyf og er í áhættuhópi gagnvart magablæðingum.
Erlent Fréttir Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Sjá meira