Stjórnarmyndun enn í gangi 19. desember 2004 00:01
Hörðum höndum var unnið að því í alla nótt að ná samkomulagi um myndun þjóðstjórnar í Ísrael. Enn munu samningamenn sitja við samningaborðið til að reyna að finna lausn á því hvernig breyta má lögum á þann veg að Simon Peres geti orðið aðstoðarforsætisráðherra. Takist það er búist við því að formlega verði greint frá myndun nýrrar stjórnar í dag. Snurða hljóp á þráðinn í gær og því hafa viðræður haldið áfram. Megintilgangur þjóðstjórnarinnar verður að tryggja framgang áætlana um brotthvarf frá Gasa-ströndinni og hefur Peres lýst þeirri skoðun sinni að Verkamannaflokkurinn ætti ekki að setja nein skilyrði fyrir þátttöku í stjórninni. Ísraelsmenn greindu frá því í morgun að hundrað og sjötíu palestínskum föngum yrði sleppt úr fangelsum í Ísrael á næstunni. Einnig var hætt hernaðaraðgerðum í flóttamannabúðum á Gasa-ströndinni sem kostað hafa ellefu lífið undanfarna sólarhringa. George Bush, Bandaríkjaforseti, segist sannfærður um að sér takist að koma á friði á milli Ísraelsmanna og Palestínumanna á seinna kjörtímabili sínu sem forseti. Þetta sagði hann í viðtali við ísraelskt dagblað í gær þar sem hann lýsti því yfir að ráðamenn í Washington myndu eyða miklu púðri í að koma á friði í Mið-Austurlöndum á næstunni. Næsta ár væri mjög mikilvægt því þá ætti friður að komast á og Sharon, forsætisráðherra Ísraels, áttaði sig á því og mikilvægt væri að Palestínumenn gerðu það einnig. Bush sagðist hafa fulla trú á því að ný stjórn í Palestínu myndi skilja það að friður kæmist á við samningaborðið en ekki með sjálfsmorðsárásum.
Erlent Fréttir Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira