Erlent

Kerry í árásarham

Eftir að skoðanakannanir fóru að sýna drjúgt forskot George W. Bush á hann og Bill Clinton sagði honum að fara að tala um nútíðina frekar en að festa sig í viðjum Víetnamstríðsins er John Kerry farinn að ráðast á Bush af fullum krafti. Þar telja margir sig kenna handbragð fyrrverandi ráðgjafa Clintons sem Kerry réði til starfa eftir að kosningastjórn hans sætti æ meiri gagnrýni fyrir að bregðast seint og illa við árásum á Kerry og gefa kjósendum litla ástæðu til að kjósa Kerry frekar en Bush. Kerry hefur ráðist gegn Bush úr ræðustóli og kosningastjórn hans hefur sent frá sér níu nýjar sjónvarpsauglýsingar frá lokum flokksþings repúblikana þar sem ráðist er að forsetanum fyrir frammistöðu hans í ýmsum málaflokkum, hann sakaður um að svíkja loforð og gæta sérhagsmuna frekar en almannahagsmuna. Breytingin á kosningabaráttu Kerrys hefur verið túlkuð á ólíkan hátt. Annars vegar benda menn á að skoðanakannanir hafi sýnt drjúgt forskot George W. Bush á Kerry. Tvær kannanir strax í kjölfar flokksþings repúblikana sýndu ellefu prósentustiga forskot forsetans og könnun sem birt var á mánudag sýndi sjö prósentustiga forskot Bush á Kerry. Því segja sumir stjórnmálaskýrendur að Kerry hafi farið á taugum og ákveðið að breyta um aðferðir í kosningabaráttunni. Andstæðingar Kerrys segja breyttan tón hans til marks um stefnubreytingu frambjóðandans. Þannig sagði Bush á kosningafundi að Kerry hefði vaknað "í gær og búinn að skipta um skoðun enn einu sinni og þessi skoðun hans er ekki einu sinni hans eigin. Hún er skoðun fyrrum andstæðings hans Howards Dean", sagði forsetinn um gagnrýni Kerrys á stríðið í Írak. Jenny Backus, kosningaráðgjafi sem hefur unnið með demókrötum horfir öðruvísi á þetta í viðtali við AP-fréttastofuna. "Kosningastjórn Kerrys hefur sagt öllum hver Kerry er, nú reyna þeir að skilgreina Bush og sýna Kerry á sama tíma sem ásættanlegan valkost í samkeppni við hann." Gagnrýnin á kosningastjórnina hefur einmitt verið á þá leið að það hafi verið andstæðingarnir og neikvæðar auglýsingar þeirra sem hafi hingað til haft meira að segja um túlkun almennings á Kerry en hann sjálfur og kosningastjórn hans. Á brattann að sækja fyrir Kerry Ef draga má lærdóm af forsetakosningunum fyrir átta og tólf árum er demókratinn John Kerry búinn að tapa forsetakosningunum fyrir George W. Bush Bandaríkjaforseta. Bandaríkjamenn horfa mjög til stuðnings við forsetaframbjóðendur á Labour Day sem kalla má nokkurs konar frídag verslunarmanna vestanhafs, síðasta stóra frídag sumarsins. Sérfræðingar í kosningafræðum segja að eftir þann tímapunkt sé mjög erfitt að fá þrjá af hverjum fjórum væntanlegum kjósendum til að skipta um skoðun á því hvern þeir telji æskilegasta forsetann. Fyrir átta árum hafði Bill Clinton, þá sitjandi forseti, drjúgt forskot á Bob Dole, frambjóðanda repúblikana. Sama hvað Dole reyndi eftir þetta tókst honum aldrei að vinna upp fylgismuninn. Svipaða sögu er að segja af baráttu Clintons og George Bush eldri. Clinton náði forskoti fyrir Labour Day og lét það ekki af hendi. Það mætti jafnvel líta til kosningabaráttunnar fyrir fjórum árum. Þá voru George W. Bush og Al Gore hnífjafnir á Labour Day og litlu munaði á þeim þegar upp var staðið. Hins vegar sýndu skoðanakannanir í millitíðinni gífurlegar sveiflur. Gore mældist tvisvar með tíu prósenta forskot, Bush sömuleiðis.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×