Innlent

Höfðu öll tilskilin réttindi

Forsvarsmenn Ferðabatterísins This is Iceland sem skipulögðu jeppaferð sem endaði með banaslysi á sunnudaginn, segjast hafa haft öll tilskilin leyfi fyrir ferðinni og rekstri fyrirtækisins. Leyfi til fólksflutninga gegn gjaldi þarf að liggja fyrir áður en menn leggja í ferðir á hálendið með farþega. Um þetta gilda lög um rekstrarleyfi til fólksflutninga. Ökumennirnir þurfa aukinheldur að hafa aukin ökuréttindi eða meirapróf. Vegagerðin sér um úthlutun þessara leyfa og samkvæmt upplýsingum þaðan var eigandi jeppans með leyfi til aksturs sérútbúinna bifreiða og jeppinn hafði verið skoðaður sem slíkur. Ökumaðurinn sem lést í slysinu var með tilskilið meirapróf, sem hann fékk í sumar. Ferðaskrifstofan This is Iceland segist hafa öll leyfi til rekstrarins frá samgönguráðuneytinu. Skrifstofan hefur hins vegar ekki leyfi til að skipuleggja lengri ferðir en dagsferðir. Í ferðinni sem endaði með slysinu á sunnudag var verið að koma úr níu til tólf tíma dagsferð í Landmannalaugar, þaðan að Heklu og svo til borgarinnar aftur. Tveir menn létust í slysinu, 23 ára Íslendingur og 35 ára gamall Brasilíumaður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×