Annað ávarp bin Ladens í vikunni 18. desember 2004 00:01
Osama bin Laden hvetur fylgismenn sína og skæruliða til að beina athygli sinni að Írak og árásum á olíuleiðslur og -vinnslustöðvar við Persaflóa, því það valdi Bandaríkjunum mestum skaða. Bin Laden hefur nú sent frá sér tvö ávörp í vikunni til að hvetja skæruliða og hryðjuverkamenn til dáða. Í gærkvöldi birti vefsíða ávarp sem talið er öruggt að sé frá bin Laden. Þar hvetur hann til árása á innviði olíuvinnslu við Persaflóa og í Írak. Hann segir árásir af því tagi vera öflugasta vopnið gegn Bandaríkjunum; þannig megi veikja þau efnahagslega. Olía sé eina ástæða þess að Bandaríkin skipti sér í sífellu af gangi mála í múslímaríkjum og að stoppa verði mesta rán í sögunni. Koma verði í veg fyrir að Bandaríkjamenn komist yfir olíu þessara ríkja. Olíufyrirtæki í Sádi-Arabíu kveðast verða á verði í kjölfar yfirlýsinganna en öryggisgæsla sé nú þegar í hámarki. Íslamskir öfgamenn hafa ítrekað ráðist á olíuvinnslustöðvar í Sádi-Arabíu undanfarið. Bin Laden bar lof á þá sem réðust á ræðismannsskrifstofu Bandaríkjanna í Jedda í Sádi-Arabíu fyrir viku og varaði yfirvöld í landinu við því að hægt væri að bola þeim frá rétt eins og Íranskeisara á sínum tíma.
Erlent Fréttir Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Fleiri fréttir Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Sjá meira