Menning

Hollvinir hins gullna jafnvægis

"Við þurfum að fá ábendingar um fyrirtæki sem sýna góðan skilning á þörfum og aðstæðum starfsmanna sinna í einkalífinu," segir Hildur Jónsdóttir, jafnréttisráðgjafi Reykjavíkur sem ásamt fleirum undirbýr ráðstefnuna Heima og heiman: Samræming vinnu og einkalífs í fjölmenningarsamfélagi, sem haldin verður á Nordica hóteli 17. nóvember. Þar verður veitt viðurkenningin Lóð á vogarskálina og fellur hún tveimur fyrirtækjum í skaut sem skara framúr í að hjálpa starfsfólki sínu að samræma starf og einkalíf, annars vegar opinberri stofnun og hinsvegar einkareknu fyrirtæki. Leitað er eftir þátttöku almennings í að velja þau fyrirtæki og rökstuddar ábendingar þurfa að hafa borist inn á vefinn hgj.is fyrir 5. nóvember. "Við vonumst til að safna þarna inn mörgum sögum og lýsingum á fyrirtækjum sem eru að standa sig vel að þessu leyti. Svo mun vinnuhópur fara í gegnum þær ábendingar og velja," segir Hildur. Það eru "Hollvinir hins gullna jafnvægis", samtök 17 aðila sem standa að ráðstefnunni og verðlaunaveitingunni. Þeir halda úti vefsvæðinu hgj.is og þetta verður í annað sinn sem þeir veita svona viðurkenningu fyrir framlag sem stuðlar að samræmingu vinnu og einkalífs í orði og verki.
Hildur Jónsdóttir, jafnréttisráðgjafi Reykjavíkur.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×