Menning

Allt er fimmtugum fært

Þá er það staðfest sem margir hafa vitað innst inni. Í fréttabréfi Samtaka atvinnulífsins kemur fram að fimmtugir og eldri eru mjög traustir starfskraftar. Starfsfólk á þessum aldri er mun sjaldnar frá vegna veikinda en sér yngra fólk, vinnur kannski ívið hægar en yngra fólkið en er mun jákvæðara í garð vinnunnar. Þetta eru mjög skýrar niðurstöður könnunar sem Samtök atvinnulífsins stóð fyrir meðal aðildarfyrirtækja. Spurt var hvort fyrirtækin ætluðu að fjölga starfsmönnum á næstunni og fram kom að 18% fyrirtækja hyggjast fjölga hjá sér starfsfólki næstu 3-4 mánuði en 10% hyggjast fækka því. Sem fyrr hyggjast þó langflest fyrirtæki halda óbreyttum fjölda starfsfólks, eða 72%. Þetta er þó nokkur breyting frá könnun SA í desember sl., þá hugðust 15% fyrirtækja fjölga starfsfólki á meðan 14% hugðust fækka því. Mest fjölgun starfa virðist framundan í iðnaði, ferðaþjónustu og fiskvinnslu en minni hjá fjármálafyrirtækjum og rafverktökum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×