Vilja komast til Rússlands 15. desember 2004 00:01
Mannræningjar sem rændu strætisvagni í Aþenu í morgun krefjast einnar milljónar evra í lausnargjald fyrir á þriðja tug gísla sem þeir hafa enn í haldi. Þeir hafa látið fimm lausa, en segjast munu halda hinum þar til þeir komast með flugi til Rússlands. Það var um klukkan fjögur í nótt að íslenskum tíma að tveir menn stigu upp í rútuna í úthverfi Aþenu. Stuttu seinna skutu þeir í gegnum þakið og kröfðust þess að rútan yrði stöðvuð, og drógu fyrir alla glugga. Bílstjóri rútunnar slapp út, ásamt einum farþega og miðaeftirlitsmanni. Lögregla umkringdi rútuna, og var þá fleiri skotum skotið. Enginn hefur þó særst eftir því sem best er vitað. Nú fyrir hádegi voru fimm látnir lausir, þrjár konur og tveir karlmenn. Einn af þeim sem látinn var laus segir að auk skotvopna, séu ræningjarnir með sprengjur á sér, og að þeir séu afskaplega taugaveiklaðir. Mennirnir vilja komast til Rússlands með flugi, og segjast munu frelsa allar konur um borð ef nýr bílstjóri kemur í rútuna til að keyra hana á flugvöllinn í Aþenu. Ekki er vitað hversvegna þeir vilja komast til Rússlands. Auk þess krefjast þeir einnar milljónar evra, eða sem svarar 85 milljónum íslenskra króna, í lausnargjald. Sjúkrabílar og fjölmennt sjúkralið er í viðbragðsstöðu á vettvangi. Ekki er vitað um þjóðerni mannanna, en þeir mæla á rússnesku. Starfsmenn albanska og rússneska sendiráðsins í Aþenu voru kallaðir á staðinn til að bera kennsl á þjóðerni þeirra. Fyrir fimm árum síðan var tveimur rútum rænt á Grikklandi á tveggja mánaða tímabili. Í báðum tilfellum var um Albana að ræða sem krafðist þess að komast til Albaníu, og í báðum tilfellum var ræninginn skotinn til bana af lögreglu.
Erlent Fréttir Mest lesið Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? Innlent Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting Innlent Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Fleiri fréttir Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Sjá meira