Bylting hjá Barcelona 2. ágúst 2004 00:01
Joan Laporta tók við sem forseti hjá Barcelona síðasta sumar. Eitt af kosningaloforðum hans var að fá David Beckham, fyrirliða enska landsliðsins, til félagsins en á endanum þurfti Laporta að lúta í lægra haldi fyrir erkifjendunum í Real Madrid sem hirtu Beckham fyrir framan nefið á katalónsku risanum. Laporta var þó ekki af baki dottinn því hann hafði betur gegn Manchester United í baráttunni um Brasilíumanninn Ronaldinho og sá kappi átti heldur betur eftir að reynast happafengur. Eftir erfiða byrjun rauk liðið í gang um miðbik móts og það er ekki á nokkurt annað lið í spænsku deildinni hallað þótt sagt sé að Barcelona hafi verið besta lið Spánar síðustu mánuði tímabilsins. Samt sem áður stendur liðið á tímamótum í dag. Helmingur liðsins er farinn og framundan er bylting í Barselónaborg því Laporta þarf að endurbyggja liðið og sjá til þess að það sé samkeppnishæft á komandi tímabili. Margir af lykilmönnum liðsins eru horfnir á braut og eru fjórir Hollendingar þeirra á meðal. Philip Cocu, fyrirliði liðsins undanfarin tvö ár, er farinn til PSV Eindhoven, kantmaðurinn eldfljóti Marc Overmars hefur lagt knattspyrnuskóna á hilluna vegna hnémeiðsla, framherjinn Patrick Kluivert kvaddi eftir sex ára dvöl og hundrað mörk og skrifaði undir samning við enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle. Laporta lá svo mikið á að losna við Kluivert að hann borgaði honum 1,5 milljónir punda fyrir að yfirgefa svæðið. Edgar Davids, sem kom í láni frá Juventus um mitt síðasta tímabil og var af flestum talinn vera helsta sprautan í bættum leik liðsins, samdi við Inter Milan en samt er kannski ekki ástæða fyrir Laporta að hafa of miklar áhyggjur. Hann hefur þegar tryggt sér eftirmann Kluiverts en sænski markahrókurinn Henrik Larsson skrifaði undir tveggja ára samning við félagið strax að loknu Evrópumótinu í Portúgal. Larsson kostaði ekki neitt en hann skoraði þrjú mörk fyrir Svía á Evrópumótinu og hefur verið með markahæstu mönnum Evrópu undanfarin ár þar sem hann hefur raðað mörkum inn fyrir skoska liðið Celtic. Laporta ætlar sér þó að styrkja framlínu félagsins enn frekar með einum sóknarmanni til viðbótar áður en tímabilið hefst. Laporta reyndi að fá Kamerúnann Samuel Eto´o til liðs við Barcelona en hann ákvað frekar að vera áfram hjá Real Mallorca eitt tímabil og fara síðan til Real Madrid eftir það. Laporta hefur einnig náð að krækja í tvo af bestu leikmönnum meistaradeildarinnar á síðasta tímabili. Fyrst keypti hann Ludovic Giuly, fyrirliða Mónakó, fyrir 6,7 milljónir punda og síðan krækti hann í portúgalska miðjumanninn Deco, sem var lykilmaður hjá Porto í sigri liðsins í meistaradeildinni og sömuleiðis hjá portúgalska landsliðinu á Evrópumótinu. Deco var eftirsóttur í sumar en Laporta þurfti að punga út um tæpum tveim milljörðum íslenskra króna fyrir að fá kappann til félagsins. Miklar vonir eru bundnar við að Deco, sem er af brasilísku bergi brotinn, og Ronaldinho nái vel saman og verði arkitektarnir að leiftrandi sóknarleik Börsunga á komandi tímabili. Laporta hefur einnig styrkt varnarhluta liðsins því hann keypti tvo brasilíska varnarmenn í sumar. Áhrif Ronaldinhos hjá Barcelona ná greinilega út fyrir völlinn því eftir að hann mælti með landa sínum, vinstri bakverðinum Sylvinho, fyrrum leikmanni Arsenal, var Laporta fljótur til og keypti hann fyrir 300 milljónir frá Celta Vigo. Að auki er hægri bakvörðurinn Belletti kominn frá Villarreal en hann fór á kostum með liðinu á síðasta tímabili og það átti sinn þátt í því að hann er orðinn leikmaður Barcelona. Að auki tryggði Laporta sér brasilíska miðvörðinn Edmilson frá franska liðinu Lyon fyrir skömmu og það var ekki til að skyggja á gleðina að Edmilson skyldi lýsa því yfir að hann hefði hafnað tilboði frá Real Madrid þar sem hann teldi Barcelona vera stærra félag og með sterkari leikmannahóp en Real Madrid. Ekki er hægt að segja annað en að nýju leikmennirnir hjá Barcelona hafi byrjað vel því liðið bar sigurorð af japönsku meisturunum Kashima Antlers, 5-0, í Tókíó á sunnudaginn. Ludovic Giuly skoraði tvívegis og Henrik Larsson skoraði með glæsilegum skalla. Maður leiksins var samt sem áður Ronaldinho sem lék sér hvað eftir annað af varnarmönnum japanska liðsins. Eins og áður sagði er Laporta ekki hættur á leikmannamarkaðnum. Þrír leikmenn, vængmaðurinn Albert Luque hjá Deportivo La Coruna, framherjinn Miguel Angel Mista hjá Valencia og argentínski varnarmaðurinn Gabriel Milito hjá Real Zaragoza, eru efstir á óskalistanum og er fastlega búist við því að einhver þessara leikmanna verði klár á næstu dögum. Hvað svo sem verður þá ætlar Laporta að gera allt sem í hans valdi stendur til að koma spænska meistaratitlinum aftur til Katalóníu þar sem hann hefur fjarverandi síðan 1999.
Íslenski boltinn Mest lesið „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Fótbolti „Ég held að við séum á heimleið“ Fótbolti Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum Fótbolti Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Fótbolti „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ Sport Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Íslenski boltinn Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Fótbolti Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Enski boltinn Fleiri fréttir Átján ára markahæst: Nýtir pirringinn sem orku og fer glaðbeitt á EM Gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi Martin fékk stóra rós í hnappagatið Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum „Ég held að við séum á heimleið“ Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Segja Breka á leiðinni til Benfica Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Martraðarvítaspyrnukeppni og lærisveinar Sigga Ragga úr leik Okeke farinn frá Álftanesi Børge Lund tekur við stórliði Kiel Thelma hetjan og Häcken á toppinn Sviss tryggði sér toppsætið eftir sigur á Kanada Hörð keppni milli Margrétar Láru og Mistar Bruno um Ronaldo: „Mikilvægt fyrir okkur að hann skoraði“ Kerfið hrundi á Wimbledon-mótinu vegna mikils hita Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Vinstri eða hægri? Ronaldo eða Messi? Goðsögn í alpagreinum handtekin með „töfrasveppi“ í fórum sínum Ronaldinho tók skóna af hillunni eftir níu ár: „Við munum gera eitthvað sérstakt“ Stolt að fá að spila á móti frænku sinni Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Mikil upplifun fyrir fólkið í bænum að mæta Man. Utd Hollendingar hjálpa Frökkum við að halda Ólympíuleikana Ancelotti staðfesti að hann getur notað Neymar í fyrsta sinn í kvöld Sjá meira