Innlent

Skotmaður tekinn með hassplöntur

Lögreglan í Reykjavík handtók í morgun manninn sem skaut með haglabyssu á tvö hús að Reykhólum í Barðastrandasýslu. Maðurinn var handtekinn í austurhluta Reykjavíkur í húsnæði sem tilheyrir honum. Þar fundust einnig 177 kannabisplöntur og græðlingar sem maðurinn er grunaður um að eiga. Annar maður sem talinn er eiga aðild að þessari kannabisræktun var handtekinn í húsi þar skammt frá. Ekki er enn vitað hvað manninum gekk til þegar hann skaut á húsin í Reykhólum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×