Viðskipti innlent
Samruni VSB og FSP? Stjórnir VSB fjárfestingarbanka hf og fjárfestingafélagsins FSP hf. hafa ákveðið að hefja viðræður um samruna félaganna. Vonast er eftir að viðræðurnar beri árangur sem fyrst. VBS fjárfestingarbanki hf er í eigu 80 hluthafa en FSP hf er fjárfestingarfélag í eigu sparisjóða og sparisjóðatendra félaga. Viðskipti innlent 13.2.2007 10:17
LÍ spáir 48,5 milljóna króna hagnaði hjá Marel Marel birtir uppgjör sitt fyrir síðasta ár á morgun. Greiningardeild Landsbankans segir í Vegvísi sínum í dag að félagið hafi tvöfaldast að vöxtum með yfirtökum í fyrra. Er gert ráð fyrir því að tekjur síðasta fjórðungs nemi 69 milljónum evra, jafnvirði 6,1 milljarða króna og verði hagnaður eftir skatta um 548 þúsund evrur, um 48,5 milljóna króna hagnaði. Viðskipti innlent 12.2.2007 16:19
Sjónvarpsefni beint í vasann Með þriðju kynslóðar símum verður hægt að fá uppáhalds sjónvarpsþáttinn beint í vasann. Tíðnileyfum frá Póstog fjarskiptastofnun verður úthlutað í vor og búist er við að sendar fyrir símana komist í gagnið fljótlega eftir það. Viðskipti innlent 12.2.2007 13:53
Verðbólga mælist 7,4 prósent Vísitala neysluverðs hækkað um 0,41 prósent frá síðasta mánuði og jafngildir það því að verðbólga síðastliðna 12 mánuði mælist 7,4 prósent, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Viðskipti innlent 12.2.2007 09:23
Fimm milljarðar í hagnað hjá VÍS VÍS, sem er í eigu Exista, hagnaðist um 5,1 milljarð króna eftir skatta á síðasta ári samanborið við 8,4 milljarða króna árið 2005. Afkoman dregst því saman sem nemur fjörutíu prósentum á milli ára. Iðgjöld jukust um 14,8 prósent á milli ára en tjónakostnaður um 8,8 prósent. Viðskipti innlent 10.2.2007 11:25
Bankaþjónusta er ódýrari hér Heildarþjónustugjöld viðskiptavina banka eru að meðaltali 62 prósentum hærri í Danmörku, Svíþjóð og Noregi en hér. Þetta kemur fram í kynningu sem Landsbankinn var með á afkomu sinni í gær. Viðskipti innlent 10.2.2007 11:24
Segja verðmæti Símans aukast Eigendur Símans horfa á 25 prósenta arðsemi eigin fjár á hverju ári sem gæti gefið sautján milljarða króna í hagnað við skráningu félagsins síðar á þessu ári. Viðskipti innlent 10.2.2007 11:24
Kaupþing spáir 0,2 prósenta hækkun VNV Hagstofan birtir verðbólgutölur fyrir febrúar á mánudag. Greiningardeild Kaupþings spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,2 prósent á milli mánaða en gangi það eftir mun tólf mánaða verðbólga mælast 7,2 prósent. Viðskipti innlent 9.2.2007 16:51
FME svarar fyrirspurnum um Bridge Group Fjármálaeftirlitinu hefur borist fjöldi fyrirspurna varðandi starfsemi Bridge Group International, sem aflar og kynnir fjárfestingarmöguleika. Fjármálaeftirlitið segir starfsemi Bridge Group ekki undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins né undir annarra eftirlitsstofnana í öðrum ríkjum auk þess sem fyrirtækið hafi ekki starfsleyfisskylda starfsemi samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, að því er Fjármálaeftirlitið kemst næst. Viðskipti innlent 9.2.2007 16:09
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs 4,3 milljarðar Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námum tæpum 4,3 milljörðum króna í síðasta mánuði. Þetta er 600 milljónum krónum minna en í mánuðinum á undan. Af heildarútlánum síðasta mánaðar námu almenn útlán 3,5 milljörðum króna en tæplega 800 milljónir króna vegna leiguíbúðalána, að því er fram kemur í mánaðarskýrslu sjóðsins. Viðskipti innlent 9.2.2007 10:08
Hvað vill Sampo? Björn Wahlroos, forstjóri Sampo Group, hefur sagt að Sampo muni gera sig gildandi við þá samþjöppun sem spáð er að verði á norrænum fjármálamarkaði eins og annars staðar í Evrópu. Exista er nú orðinn stærsti hluthafinn í Sampo eins og kemur fram annars staðar á síðunni. Viðskipti innlent 9.2.2007 09:48
Versni horfur hækka vextir Seðlabankinn víkur sér ekki undan því að hækka stýrivexti enn frekar versni verðbólguhorfur, að sögn Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra. Bankastjórnin kynnti í gær ákvörðun sína um að stýrivextir skuli vera óbreyttir í 14,25 prósentum enn um sinn. Viðskipti innlent 9.2.2007 09:05
Milestone tekur 16,5 milljarða lán Fjárfestingafélagið Milestone ehf. hefur gengið frá lánasamningi við alþjóðlega fjárfestingabankann Morgan Stanley um töku láns fyrir 16,5 milljarða krónur til þriggja ára. Lánið er veitt í tengslum við endurfjármögnun félagsins. Viðskipti innlent 8.2.2007 14:27
Exista kaupir í Sampo í Finnlandi Fjármálafyrirtækið Exista hefur keypt rúmlega 15 prósent hlut í finnska tryggingafélaginu Sampo Oyj. Áætlað meðalverð hlutanna í viðskiptunum nam 20,5 evrum á hlut en samkvæmt lokagengi hlutabréfa í Sampo í gær er markaðsvirði hlutanna um 1,9 milljarðar evra, eða um 170 milljarðar króna. Stjórn Exista hefur skuldbundið sig til að gefa út nýtt hlutafé í Exista í tengslum við kaupin. Viðskipti innlent 8.2.2007 10:24
Uppsett áskriftarverð Sýnar vegna HM réttlætanlegt Samkeppniseftirlitið telur kostnaðarforsendur hafa réttlætt uppsett verð sjónvarpsstöðvarinnar Sýnar þegar val stóð á milli þess að kaupa áskrift þann tíma sem heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu stóð yfir í fyrrasumar eða kaupa áskrift að Sýn til lengri tíma. Viðskipti innlent 8.2.2007 10:04
Seðlabankinn heldur stýrivöxtum óbreyttum Seðlabanki Íslands ákvað í dag að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum í 14,25 prósentum. Þetta er í takt við spár innlendra sem erlendra greinenda sem spáðu óbreyttum vöxtum. Viðskipti innlent 8.2.2007 09:00
Peningaskápurinn ... Halveiðar eru þeim greinilega ofarlega í huga sem eru í viðskiptum og ljóst að þar telja margir hverjir meiri hagsmunum hafa verið fórnað fyrir minni þegar veiðarnar voru hafnar á ný á síðasta ári. Á þingi Viðskiptaráðs Íslands var í gær fjallað um ímynd landsins. Viðskipti innlent 8.2.2007 00:01
Hagnaður Össurar 293 milljónir króna Stoðtækjafyrirtækið Össur skilaði 4,3 milljóna dala hagnaði á síðasta ári. Það svarar til 293 milljóna íslenskra króna samanborið við 3,1 milljóna bandaríkjadala, eða 213 milljóna króna, hagnað á sama tíma árið 2005. Tap fyrirtækisins á fjórða ársfjórðungi 2006 nam 3,7 milljónum dala, jafnvirði 252,4 milljónum króna, sem er í takt við spár greiningardeilda bankanna sem gerðu ráð fyrir allt frá 210 til 310 milljóna króna tapi á fjórðungnum. Viðskipti innlent 7.2.2007 16:47
Forsætisráðherra boðar skattabreytingar Ákveðið hefur verið að leggja af skattlagningu á söluhagnað fyrtækja af hlutabréfum. Geir H. Haarde forsætisráðherra greindi frá þessu á Viðskiptaþingi 2007 í dag. Viðskipti innlent 7.2.2007 16:05
Ísland í 19. sæti á ímyndarlista Ísland er í nítjánda sæti á lista þjóða þar sem mældur er styrkur ímyndar þeirra út frá stjórnsýslu, menningu, ferðamennsku, útflutningi og fleiri þáttum. Listinn nefnist Anholt Nation Brands Index, nefndur eftir Simon Anholt sérfræðingi í ímyndarmálum þjóða sem kynnti niðurstöðurnar á Viðskiptaþingi 2007 í dag. Viðskipti innlent 7.2.2007 15:21
Hagnaður Vinnslustöðvarinnar dregst saman Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum skilaði 335 milljóna króna hagnaði á síðasta ári samanborið við 442 milljónir króna árið áður. Hagnaður fyrirtækisins dróst því saman sem nemur 107 milljónum króna. Þar af nam hagnaðurinn 248 milljónum króna á fjórða ársfjórðungi 2006. Viðskipti innlent 7.2.2007 09:07
Uppselt á Viðskiptaþing Uppselt er á Viðskiptaþing sem Viðskiptaráð Íslands heldur á Hótel Nordica í dag. Salurinn tekur 500 manns og mun aðsókn aldrei hafa verið jafn mikil áður. Hvort yfirskrift þingsins er svona lokkandi, eða eitthvað annað, liggur ekki fyrir, en yfirskriftin er spurningin: Er Ísland besta land í heimi? Nokkrir af fremstu viðskiptajöfrum þjóðarinnar munu meðal annarra ávarpa þingið. Viðskipti innlent 7.2.2007 07:34
Spennandi ár og arðvænleg verkefni Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri Matís, nýs opinbers hlutafélags sem til starfa tók um áramótin, leiðir Óla Kristján Ármannsson í allan sannleika um starfsemina. Hún segir verkefnin snúast um tvennt, nýsköpun og matvælaöryggi. Viðskipti innlent 7.2.2007 06:15
Hagnaður Icebank fór yfir 5,6 milljarða Icebank, sérhæfður viðskiptabanki í eigu sparisjóðanna, skilaði 5.662 milljóna króna hagnaði í fyrra, sem er besta afkoma í sögu bankans, og jókst hagnaður um 138 prósent á milli ára. Var arðsemi eigin fjár 63,8 prósent samanborið við 54,3 prósent árið áður. Viðskipti innlent 7.2.2007 06:15
Stýrivextir líklegast óbreyttir á morgun Sérfræðingar spá óbreyttum stýrivöxtum Seðlabankans á vaxtaákvörðunardegi á morgun. Hækkun væntingavísitölunnar og gengisflökt veldur þó áhyggjum. Viðskipti innlent 7.2.2007 06:15
Verulega samlegð þarf til að réttlæta kaupin Bjarni Ármannsson segir að FIM Group geti aukið tekjur og hagnað mikið með innri vexti. Glitnir fær aðgang að Rússlandi. Viðskipti innlent 7.2.2007 06:15
Seed Forum vekur athygli vestanhafs Fjárfestaþing Seed Forum þar sem efnaðir einstaklingar og sprotafyrirtæki eru leidd saman hefur vakið heilmikla athygli í fagtímaritum fyrir fjárfesta í Bandaríkjunum. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson ræddi við Jón Helga Egilsson, framkvæmdastjóra Seed Forum. Viðskipti innlent 7.2.2007 06:15
Hagnaður SpKef fjórfaldast Metafkoma varð á rekstri Sparisjóðsins í Keflavík (SpKef) á síðasta ári. Hagnaður nam 4.687 milljónum króna og jókst um 308 prósent á milli ára. Arðsemi eigin fjár var 124,5 prósent. Viðskipti innlent 7.2.2007 06:00
Icelandair semur við Air Malta Icelandair Group hefur gert samning við Air Malta upp á rúman milljarð króna. Í tilkynningu félagsins kemur fram að LatCharter Airlines, dótturfélag Loftleiða Icelandic, hafi gert samning við maltneska ríkisflugfélagið Air Malta um leigu á einni Airbus A320 þotu til tveggja ára. Viðskipti innlent 7.2.2007 06:00
Economist ódýrt hérlendis Á sama tíma og tímaritið Economist segir að íslenska krónan sé ofmetnasti gjaldmiðill í heimi, samkvæmt Big Mac-vísitölunni, er það nær hvergi ódýrara í lausasölu en einmitt hér á landi. Viðskipti innlent 7.2.2007 06:00
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Viðskipti innlent