Sjónvarpsefni beint í vasann 12. febrúar 2007 13:53
Með þriðju kynslóðar símum verður hægt að fá uppáhalds sjónvarpsþáttinn beint í vasann. Tíðnileyfum frá Póstog fjarskiptastofnun verður úthlutað í vor og búist er við að sendar fyrir símana komist í gagnið fljótlega eftir það. GSM-farsímakerfið var upprunalega hannað fyrir talsamband þar sem SMS-smáskilaboð bættust síðan við ásamt GPRS-gagnaflutningi. Þriðju kynslóðar farsímar eru hannaðir fyrir háhraða gagnaflutning og geta auðveldlega boðið upp á sjónvarpsefni í góðri upplausn, þótt maður sé staddur inni í tjaldi í Vaglaskógi. Til að styðja þessa nýju tækni þarf nýja senda sem munu rísa víðsvegar um land með tíð og tíma, en í vor verður úthlutað nýjum tíðnileyfum frá Póst- og fjarskiptastofnun. Í reglum stofnunarinnar um uppbyggingu kerfisins er svo líka sagt til um hversu hratt skuli byggja kerfið upp. Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar. „Þriðju kynslóðar farsímarnir geta flutt gögn á sambærilegum hraða og ADSL-tenging flestra heimila í dag," segir Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar. Þriðju kynslóðar símarnir verða í sambærilegu gagnasambandi og talsamband GSM-símanna í dag án þess að þurfa á heitum reitum að halda. Hrafnkell býst ekki við því að símarnir taki við af fartölvum þar sem hægt verður að tengja fartölvur í gegnum þriðju kynslóðar síma og vera sítengdur án heitra reita. „Við þurfum ekki heita reiti fyrir sítengingu þriðju kynslóðar símanna. Tengingin verður heldur ekki bara á dreifingarsvæðum, ég er að tala um heilu borgirnar og heilu löndin," segir Hrafnkell. Þriðju kynslóðar símarnir geta bæði notað gamla og nýja kerfið fyrst um sinn, en með tíð og tíma verður alfarið skipt yfir í þriðju kynslóðar kerfið.
Mest lesið Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Sjá meira