Skoðun

Greint frá góðum árangri

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Stundum er því haldið fram að í fréttir rati ekki nema slæmar fréttir, að breytingar til batnaðar og gott gengi einhvers staðar fái takmarkaða athygli. Áhersla á það sem aflaga fer, án stærra samhengis hlutanna, verði svo til þess að upp sé brugðið skekktri og svartari mynd af stöðu heimsmála en ástæða sé til.

Fastir pennar

Grátt í höllinni

Birta Björnsdóttir skrifar

Málefni flóttamanna og innflytjenda eru í algleymingi og stór hluti umræðunnar snýst um hvernig búa megi í haginn til þess að þeim sem náðarsamlegast fá hingað að flytja líði vel.

Bakþankar

Biti þeirra sem best hafa það

Valgerður Bjarnadóttir skrifar

Fjármálaráðherrann sagði í vikunni að hann væri orðinn talsvert leiður á því að fólk teldi sanngjarnt að þær stéttir sem nú eiga í samningaviðræðum við ríkisvaldið fái kjarabætur í takt við það sem aðrar stéttir hafa fengið.

Skoðun

Hvar gifta hinir ópassandi sig?

Svanur Sigurbjörnsson skrifar

„Stundum vill fólk beygja svolítið leikreglurnar. Það vill fá rómantíkina sem fylgir því að vera í fallegu kirkjuhúsi og fá jafnframt að halda í heiðri eigin lífsgildi án trúar í athöfninni. Þetta er skrítið í huga hreinlínufólks en er eins konar rómantísk gagnsemishyggja.“

Skoðun

Lýðræði! Hvað er nú það?

Örn Sigurðsson skrifar

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins 2015 verður haldinn 23.-25. október nk. Frá stofnun lýðveldis 1944 hefur flokkurinn átt aðild að ríkisstjórnum í 680 mánuði af 850 eða í um 80% tímabilsins og átt forsætisráðherra í 490 mánuði eða í um 57% lýðveldistímans.

Skoðun

Fólki blöskrar

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar

Í tengslum við flóttamannaumræðuna, sem farið hefur hátt undanfarið, hefur töluverð umræða skapast um Útlendingastofnun. Í gær voru stofnuninni afhentar 10.000 undirskriftir sem safnast höfðu til stuðnings albanskri fjölskyldu sem fær ekki hæli hér á landi.

Fastir pennar

Mannúð og meðferð í stað róttækrar refsistefnu

Björgvin G. Sigurðsson skrifar

Refsistefnan í ávana- og fíkniefnamálum hefur ekki skilað tilætluðum árangri. Allt of langt er t.d. gengið með því að dæma burðardýr í smyglmálum, oft fárveika fíkla, í fangelsi um langt árabil. Það skilar engum árangri að dæma af fólki langt æviskeið í refsingarskyni fyrir þess háttar brot.

Skoðun

Meira norrænt samstarf!

Jafnaðarmenn í Norðurlandaráði skrifar

Dagana 25.–29. október kemur Norðurlandaráð saman í Hörpu, þar sem 87 þingmenn, fulltrúar allra þjóðþinga Norðurlandanna ræða og taka ákvarðanir um mikilvægustu verkefni norrænnar samvinnu á komandi misserum.

Skoðun

Börnin látin bíða

Magnús Baldursson og Katrín Davíðsdóttir skrifar

Það hefur verið ánægjulegt að sjá geðheilbrigðismál barna og unglinga komast í brennidepil umræðunnar síðustu vikur og má hrósa fjölmiðlum fyrir það. Sérstaklega var áhrifaríkt að heyra frásagnir foreldranna og barnanna sjálfra, þær fá okkur sem samfélag til að horfast betur í augu við þessi erfiðu vandamál.

Skoðun

Aldraðir hafa skilað sínu vinnuframlagi!

Björgvin Guðmundsson skrifar

Svo virðist sem Alþingi ætli ekki að taka rögg á sig og afgreiða kjaramál aldraðra og öryrkja með myndarskap. Ég hafði greinilega of mikla trú á Alþingi. Ég vonaði og trúði því, að Alþingi gæti tekið í taumana og leiðrétt þau mistök, sem ríkisstjórn nú og áður hafði gert í málefnum lífeyrisþega.

Skoðun

Stjórnarskrárnefnd Bjarna Benediktssonar

Þorvaldur Gylfason skrifar

Vert er að halda til haga þætti Bjarna Benediktssonar, síðar formanns Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, í stjórnarskrármálinu árin eftir lýðveldisstofnunina 1944.

Fastir pennar

Misrétti í launastefnu ríkisfyrirtækja?

Þorsteinn Þorsteinsson skrifar

Greinarhöfundur starfaði sem framkvæmdastjóri hjá Ríkisútvarpinu (RÚV) 1999-2014. Eitt af því sem vakti undrun mína á þessum tíma var hve mjög misjafnlega virðist vera gefið þegar kemur að rekstrarfé ríkisfyrirtækja. Sum þeirra virðast fitna eins og púkinn á fjósbitanum á meðan önnur berjast í bökkum.

Skoðun

Það er veisla!

Frosti Logason skrifar

Á Vesturlöndum gerast nú víða spennandi hlutir í stjórnmálum. Í Bandaríkjunum fer eldri borgarinn Bernie Sanders um sem öskrandi byltingarmaður, boðar nýjar áherslur sem hingað til hafa þótt helgispjöll þar í landi. Mannsæmandi kjör fyrir almúgann á kostnað hinna moldríku.

Bakþankar

Hlutverk forseta Íslands

Ari Trausti Guðmundsson skrifar

Í framhaldi af grein Stefáns Jóns Hafstein sl. helgi blanda ég mér í umræðuna. Sem frambjóðandi 2012 bý ég yfir margs konar reynslu og stefnumótun sem á erindi til lesenda Fbl.

Skoðun

Dómnefndir og Hæstiréttur

Birgir Guðjónsson skrifar

Nú er skrattanum skemmt og mér líka. Virðulegir hæstaréttarlögmenn sem sækjast eftir stöðu hæstaréttardómara leyfa sér að mótmæla verðleikamati (merita) kollega sinna í dómnefnd um ágæti þeirra til starfans. Þeir ættu að fara varlega og muna að þetta þótti hin mesta óhæfa þegar þetta var fyrst gert fyrir nokkrum áratugum.

Skoðun

Bjargræði eða böl? Vonlaus staða flóttamanna á Íslandi

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifar

Lög þau sem á Íslandi gilda um dvalarleyfi til útlendinga eru svo götótt og geðþóttaleg að furðu vekur. Þau fela ráðherra nánast alræðisvald varðandi það að setja reglur og veita undanþágur frá reglum.

Skoðun

Foreldrar og sjálfsmynd barna

Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar

"Lífið er læk!” En þarf það að vera svoleiðis? Hvernig geta foreldrar haft áhrif á sjálfsmynd barna sinna?

Skoðun

Hvers vegna kvennafrí?

Kristín Ástgeirsdóttir skrifar

Á þessu mikla afmælisári höldum við ekki bara upp á 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna til Alþingis heldur á kvennafrídagurinn (eða kvennaverkfallið) 40 ára afmæli.

Skoðun

Að hemja lúpínu – hvað dugar?

Þorvaldur Örn Árnason skrifar

Þann 13. okt. sl. sagði Fréttablaðið frá hugmyndum Dalvíkinga um að eyða lúpínu og fleiri ágengum jurtum til að vernda tiltekin gróðurlendi, m.a. friðland.

Skoðun

Óréttlæti virðisaukaskattslaganna

Brynhildur S. Björnsdóttir skrifar

Miðað við fjölda mála sem hafa komið upp undanfarið þá virðist sem Ríkisskattstjóri sé nú í átaki við að innheimta virðisaukaskattsskuldir í gegnum þriðja aðila.

Skoðun

Aftur á upphafsreit

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Fari svo að ríkið eignist Íslandsbanka að fullu, líkt og tillaga kröfuhafa bankans gerir ráð fyrir, minnir staðan um margt á ástandið áður en lagt var upp í söluferli bankanna sumarið 2001. Þá hétu bankar ríkisins Landsbanki og Búnaðarbanki (í stað Íslandsbanka nú).

Fastir pennar

Klikkuð körfuboltakvöld

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar

Barátta sjónvarpsstöðvanna er hörð á föstudagskvöldum þar sem félagarnir Gísli Marteinn og Logi Bergmann bjóða þekktum Íslendingum í sófana sína og reyna að keppa við raunveruleikaþáttinn The Voice á Skjá einum. Sjálfur er ég hvorki aðdáandi raunveruleikaþátta né spjallþátta og átti þar til síðastliðinn föstudag ekki von á því að föstudagskvöld yrðu sjónvarpskvöld.

Bakþankar