Lífið

Snipes sýknaður af ákæru um fjársvik

Bandaríski kvikmyndaleikarinn Wesley Snipes hefur verið dæmdur fyrir að skila ekki skattframtali af bandarískum dómstól, en hann var sýknaður af alvarlegri ákærum um fjársvik. Kvikmyndastjarnan var ákærð fyrir að greiða ekki skatt af tæplega fjögurra milljarða króna tekjum á árunum 1999 til 2004.

Lífið

Faðir Spears úrskurðaður lögráðaaðili

James Spears faðir Britney Spears er nú lögráðaaðili yfir dóttur sinni og eigum hennar samkvæmt úrskurði dómstóls í Los Angeles. Söngkonan var flutt á geðdeild UCLA sjúkrahússins á fimmtudag eftir langvarandi óreglu og persónuleg vandamál. Dómstóll getur svipt manneskju lögræði sem ekki getur séð um sig sjálfa eða stjórnað eigin lífi.

Lífið

Aðdáendur Sigga Páls fagna

Sigurður Pálsson hlaut á fimmtudaginn Íslensku bókmenntaverðlaunin 2007 í flokki fagurbókmennta fyrir Minnisbók. Fáir fögnuðu sigri Sigurðar jafn innilega og meðlimir Singapore Sling. Þeir voru staddir úti í Berlín í gær þegar þeir heyrðu fréttirnar. „Þetta voru frábær tíðindi,“ segir Henrik Björnsson söngvari. „Við opnuðum kampavínsflösku um leið og við heyrðum þetta.

Menning

Britney sakar mömmu um að vilja stela kærastanum

Læknar við UCLA sjúkrahúsið þar sem Britney dvelur nú hafa skilgreint hana sem „G.D“, Gravely Disabled, eða alvarlega fatlaða. Það þýðir að læknar meta hana vanhæfa til að sinna grunnþörfum eins og að verða sér út um mat, klæða sig og sjá sér fyrir húsaskjóli. Skilgreininguna þarf til að hægt sé að vista hana gegn vilja sínum.

Lífið

Íslendingur meðal dómara í Britain's Next Top Model

Íslenski ljósmyndarinn og fyrrverandi fyrirsætan Huggy Ragnarsson verður meðal dómara í Britain's Next Top Model. Líkt og í bandarískum systurþættinum keppast fjórtan stúlkur með kjafti og vel snyrtum klóm um að verða næsta ofurfyrirsæta Bretlands.

Lífið

Pressan með meira áhorf en Næturvaktin

Landsmenn hafa undanfarin fimm sunnudagskvöld setið límdir fyrir framan skjáinn og fylgst með ævintýrum blaðamannsins Láru á Póstinum þar sem hún reynir að varpa ljósi á hver myrti athafnamanninn Grétar.

Lífið

Jennifer Lopez lætur sérhanna spítalaslopp

J-Lo lætur ekki sjá sig í hverju sem er. Hún hefur eytt megninu af meðgöngunni í sérhönnuðum litríkum spjörum Robertos Cavalli, sem eins og frægt er orðið var fyrstur til að glopra því út úr sér að hún ætti von barni.

Lífið

Stíldrottningin Ingibjörg Sólrún vekur athygli í Washington

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra vakti athygli framakvenna í Washingon þegar hún var þar snemma í vetur fyrir sérdeilis fallegan og litríkan klæðnað. Ríkisstarfsmaður í Washington, sem gengur undir bloggnafninu Ava, var viðstödd móttöku fyrir konur í utanríkisþjónustu í sendiherrabústað Íslands í Washington seint í október.

Lífið

Bókmenntaverðlaunin afhent á Bessastöðum

Ólafur Ragnar Grímsson afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin á Bessastöðum rétt fyrir fimm í dag. Verðlaunin eru veitt í tveimur flokkum og voru fimm bækur tilnefndar í hvorum. Minnisbók eftir Sigurð Pálsson hlaut verðlaunin í flokki fagurbókmennta, en í flokki fræðirita og rita almenns eðlis varð Ljóðhús, þættir um skáldskap Sigfúsar Daðasonar, eftir Þorstein Þorsteinsson hlutskörpust.

Lífið

Beðmálsblogg Ellýar á skjáinn?

Framleiðslufyrirtækið Pegasus hefur keypt sjónvarpsréttinn að bloggi Ellýar Ármanns. Snorri Þórisson, eigandi Pegasus, segir málið á algjöru frumstigi, og að þeir séu nú að undirbúa næstu skref. Þeir hafi viljað tryggja sér réttinn, en hann telur að bloggið gæti verið sniðugur grunnur fyrir sjónvarpsþátt í ætt við Sex And The City.

Lífið

Eftirhermur Hjálmars á YouTube

Hjálmar Hjálmarsson fór algjörlega á kostum í Loga í beinni á föstudagsvöldið. Á fimm mínútum brá hann sér í gervi tuga þjóðþekktra íslendinga, og dýra frá lóu til belju.

Lífið

Ekki hrifinn af skæruliðaaðgerðum

Ég er í sjálfu sér ekki hrifinn af svona skæruliðaaðgerðum, veit ekki hverju þær skila“, segir Skjöldur Sigurjónsson veitingamaður á Ölstofunni, en hún var einn fjölda staða þar sem kampakátir reykingamenn fíruðu upp í gær - innanhúss.

Lífið

Vildu íslenska barnastjörnu í Playboy

„Mér var boðið að sitja fyrir í tímaritum sem ég kærði mig ekki um,“ sagði Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söngkona við Kastljósið í gærkvöldi. Þar átti Jóhanna meðal annars við karlatímaritið Playboy.

Lífið

Britney lögð inn - hefur ekki sofið í fimm daga

Britney Spears var tímabundið svipt sjálfræði í nótt og flutt á sjúkrahús, eftir að geðlæknir úrskurðaði að hún væri hættuleg sjálfum sér og öðrum. Samkvæmt heimildum TMZ fannst geðlækninum andlegt ástand Britney hafa farið hríðversnandi undanfarna daga. Hún mun vera í miklu maníukasti, og hefur ekki sofið frá því á laugardag.

Lífið

Granatepli og fíkjur í salatið

Þeir eru eflaust margir sem hafa strengt þess heit að borða meira af grænmeti og ávöxtum á nýju ári. Salöt með mat eru vel til þess fallin að fá hollustu í mataræðið, en heilinn þreytist fljótt á tómötum og gúrkum. Marentza Poulsen er hafsjór fróðleiks um hvernig má gera salötin meira spennandi fyrir bæði augu og maga.

Matur

Flottar stelpur söfnuðu fyrir Kattholt

Harpa Steingrímsdóttir og Inga Johnsen, 8 ára stelpur úr Hafnarfirði, eru miklir dýravinir. Þær sýndu það í verki nú um jólin þegar þær hönnuðu og smíðuðu eyrnalokka og seldu svo til að styrkja heimilislausa ketti í Kattholti.

Lífið

Ólafur F búinn að finna ástina?

„Það birtist kona í spádómnum. Hún er mjög dul, og virðist skrítin við fyrstu kynni, en þegar borgarbúar fá að kynnast henni er hún hjartahlý og góð", segir Ellý Ármanns, spákona, en hún lagði nokkur spil fyrir Ólaf F. Magnússon fyrir þáttinn Mér finnst á ÍNN sjónvarpsstöðinni.

Lífið

Gylltur nautsrass veldur hruni markaða

Skýringin á hruni verðbréfamarkaða á Indlandi er fundin. Hana er að finna í afstöðu afturenda eins og hálfs metra hárrar bronsstyttu af nauti fyrir utan kauphöllina í Mumbai. Indverjar eru þekktir fyrir ást sína á nautgripum, en þessi veldur þeim hugarangri.

Lífið