Lífið
Flutti út frá Westwick Ed Westwick og Chace Crawford, sem þekktastir eru fyrir leik sinn í þáttunum Gossip Girl, hafa verið herbergisfélagar frá því að tökur á þáttunum hófust. Nú hefur Chace aftur á móti flutt út úr íbúðinni sem þeir deildu í Chelsea-hverfinu í New York og í sína eigin sem er í fjármálahverfi borgarinnar. Ástæðan fyrir flutningunum ku vera sú að Chace þoldi ekki lengur óþrifnaðinn sem fylgdi Ed. Lífið 17.7.2009 02:00
Lukas vildi Amiinu Hljómsveitin Amiina heldur áfram að vekja athygli utan landsteinanna. Sænski leikstjórinn Lukas Moodysson, sem til dæmis er þekktur fyrir myndirnar Lilja 4ever og Tilsammans, fór á stúfana við stelpurnar og fékk að nota tvö lög af plötunni Kurr í nýjustu mynd sína Mammoth. Þá hafa tónlistarmenn á borð við Danny Elfman sýnt áhuga á samstarfi við stelpurnar. Lífið 17.7.2009 01:00
Trump erfingi á leið í hnapphelduna Ivanka Trump, dóttir hins umtalaða milljarðamærings, Donalds, gengur senn í hnapphelduna. Ivanka tilkynnti þetta á Twitter í dag. „Ég trúlofaði mig í dag… sannarlega besti dagur lífs míns,“ skrifaði hún. Hinn heppni er milljarðamæringurinn og NY Observer útgefandinn Jared Kusher. Lífið 16.7.2009 19:00
Sækir um skilnað við Amy Winehouse Hinn 27 ára gamli eiginmaður Amy Winhehouse, Black Fielder-Civil, hefur farið fram á skilnað við söngkonuna óþægu. Ástæðan segir hann vera framhjáhald söngkonunnar. Hann segir óþolandi að búa með stúlkunni, sem er 25 ára að aldri. Lífið 16.7.2009 15:22
Harry Potter stjarna dæmd fyrir kannabisræktun Jamie Waylett, sem leikur Vincent Crabbe í Harry Potter myndunum, játaði fyrir dómstóli í London í dag að hafa ræktað maríjuana. Waylett var ákærður eftir að lögreglan fann átta poka af kannabis og hníf við leit í bíl sem hann var staddur í. Þegar efnin fundust í bílnum var leitað á heimili móður hans og fundust þá 10 kannabisplöntur. Hámarksrefsing við því að rækta kannabis í London er fjórtán ára fangelsi. Lífið 16.7.2009 15:01
Hár Jacksons brennur - myndband Michael Jackson varð fyrir því óláni árið 1984 að kveikja í hárinu á sér þegar hann var að leika í Pepsi-auglýsingu. Það vildi þannig til að reyksprengja sem notuð var í auglýsingunni sprakk of snemma með þeim afleiðingum að afrógreiðsla konungsins stóð í ljósum logum. Lífið 16.7.2009 10:58
Innundir hjá pólitíkusum Leyniþræðir um allt stjórnkerfið liggja til einhvers sérstæðasta og áhrifaríkasta félagsskapar Íslands. Hrútavinafélagið á Stokkseyri er tíu ára og fagnar því á Bryggjudögum á Stokkseyri um helgina. Lífið 16.7.2009 06:00
Heljarinnar leit að Óliver „Eggert Þorleifsson leikur Fagin. Já, Laddi lék hann á sínum tíma. Ég er ótrúlega ánægð með að fá Eggert í hlutverkið. Hef verið mikill aðdáandi hans frá fornri tíð. Að fá að leikstýra Dúdda úr Með allt á hreinu hlýtur að vera draumur sérhvers leikstjóra,“ segir Selma Björnsdóttir leikstjóri. Lífið 16.7.2009 06:00
Melchior saman á ný Hljómsveitin Melchior heldur útgáfutónleika á Kaffi Rosenberg í kvöld til að fagna útgáfu þriðju hljómplötu sinnar. Þetta er í fyrsta sinn sem hljómsveitin kemur saman frá árinu 1978, en hún var stofnuð árið 1973. Lífið 16.7.2009 05:00
Bókmenntahátíð í Dölunum Bókmenntahátíðin Sumarljós verður haldin í Leifsbúð í Búðardal á laugardag, þann 18. júlí. Hátíðin er tileinkuð skáldinu Jóni Kalman Stefánssyni, en Dalirnir hafa löngum verið sögusviðið í bókum hans og mun hann sjálfur koma og segja söguna á bak við söguna; hvers vegna Dalirnir séu honum svo hugleiknir. Lífið 16.7.2009 04:45
Nei-tónleikar á Sódómu í kvöld Hinir árlegu styrktartónleikar gegn kynbundnu ofbeldi, betur þekktir sem Nei-tónleikarnir eru í kvöld. Lífið 16.7.2009 04:00
Sýnir leikrit á heimilum annarra Ævar Þór Benediktsson leiklistarnemi setur upp einleikinn Ellý, alltaf góð eftir Þorvald Þorsteinsson í heimahúsum. Ekki sínu reyndar, heldur hjá velunnurum sínum. Lífið 16.7.2009 03:00
Næststærst á fyrsta starfsári „Það er ekki endilega markmiðið að verða stærsti útgefandinn, heldur að verða sá besti,“ segir Steinþór Helgi Arnsteinsson einn eigenda Hljómplötuútgáfunnar Borgarinnar, sem er á fyrsta starfsári orðin næststærsta plötuútgáfa landsins. Lífið 16.7.2009 02:00
Sumarhóparnir kveðja í kvöld Uppskeruhátíð skapandi sumarhópa Hins hússins, Vængjasláttur, verður haldin hátíðleg í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld. Þar geta gestir séð brot af því sem hóparnir hafa verið að starfa við undanfarnar vikur. Lífið 16.7.2009 01:00
Fullorðnast í mynd og utan Hin langa bið eftir nýjustu Harry Potter-kvikmyndinni, Harry Potter and the Half Blood Prince, er loks á enda. Leikendur og aðdáendur virðast mjög meðvitaðir um að endirinn nálgast. Persónurnar alkunnu eru ekki þær einu sem fullorðnast í ár. Lífið 16.7.2009 00:45
Í fótspor Pamelu David Hasselhoff undirbýr nú breska útgáfu af hinum sígilda sjónvarpsþætti Strandvörðum. Lífið 16.7.2009 00:30
Andlát Jacksons rannsakað sem morðmál Slúðurvefsíðan TMZ, sem greindi fyrst frá andláti Michael Jackson, segir að lögreglan í Los Angeles rannsaki nú andlát konungsins sem morðmál. Dr. Conrad Murray, einkalæknir Jacksons liggur undir grun. Lífið 15.7.2009 16:36
FH-ingar bjóða hælisleitendum á leikinn í kvöld Stuðningsmaður FH fékk á dögunum þá hugmynd að bjóða hælisleitendum sem dveljast í Reykjanesbæ á knattspyrnuleik milli FH og Aktobe frá Kasakstan. Hann hafði samband við forráðamenn FH sem voru meira en fúsir til að bjóða hælisleitendunum á leikinn sem fram fer í kvöld og er í Meistaradeild Evrópu. Lífið 15.7.2009 16:08
Stefnir á atvinnumannaferil í blönduðum bardagalistum Hinn tvítugi Gunnar Nelson stefnir á atvinnumannaferil í blönduðum bardagalistum, einni blóðugustu íþrótt heims. Hann dreymir um að keppa í Bandaríkjunum en þar er lágmarksaldur keppenda 21 ár. Gunnar verður í viðtali Í Íslandi í dag Lífið 15.7.2009 16:00
Hayden splæsti á stefnumóti Hin nítján ára fegurðardís Hayden Panettiere er nú farin með samband sitt við hinn breska sjónvarpsmann Steven Jones á næsta stig, ef marka má erlenda slúðurmiðla. Lífið 15.7.2009 15:44
Óttast að líki Jacksons verði stolið Lík Michael Jackson hefur verið flutt úr grafhvelfingunni sem það var geymt í af ótta við að trylltir aðdáendur steli líki goðsins. Lífið 15.7.2009 13:33
Robert Redford í hnapphelduna Hinn 72 ára gamli stórleikari, Robert Redford, er genginn í hnapphelduna. Hann játaðist konu sinni, hinni þýsku Sibylle Szaggars, í Hamborg um síðustu helgi, eftir því sem Hamburger Abendblatt greinir frá. Því fylgir sögunni að Redford sé ágætlega að sér í þýsku og því hafi athöfnin getað farið fram á þýsku. Lífið 15.7.2009 13:08
Kurr Amiinu ómar í nýjustu mynd Moodyssons Tónlist eftir hljómsveitina Amiinu hljómar víða í nýjustu kvikmynd Lukas Moodysson sem er nú í kvikmyndahúsum víða um heim. Myndin er fyrsta kvikmynd Moodysson á enskri tungu og fara þar stórstjörnur á borð við Michelle Williams og Gael Garcia Bernal með aðalhlutverk. Lífið 15.7.2009 10:26
Sumargleði Kimi hefst Sumargleði Kimi Records verður haldin í annað sinn nú í sumar. Hátíðin verður haldin í tveimur hlutum og hefst sá fyrri í dag á skemmtistaðnum Paddy's í Keflavík og endar sunnudaginn 19. júlí á Gamla bauk á Húsavík. Lífið 15.7.2009 04:00
Nánast samhljóma ávarp gjörólíkra borgarstjóra „Þetta er eflaust eitthvað staðlað sem skrifstofa borgarstjóra hefur útbúið," segir Ólafur F. Magnússon fyrrverandi borgarstjóri. Lífið 15.7.2009 03:30
Sent með Fed-Ex frá Berlín Þriðju útgáfu sjónritsins Rafskinnu, sem er fyrsta íslenska tímaritið sem gefið er út á mynddiski, verður fagnað með lítilli útihátíð í dag. Þemað í þetta sinn er í anda kreppunnar og gengur út á endurvinnslu og endurútgáfu. Lífið 15.7.2009 03:00
Samstaða milli leikfélaganna Félag íslenskra framhaldsskólaleikfélaga, FÍFL, var stofnað fyrir stuttu. Lífið 15.7.2009 02:00
Á lausu á ný Söngkonan Jessica Simpson og kærasti hennar til tveggja ára, ruðningskappinn Tony Romo, hafa slitið sambandi sínu. Samkvæmt heimildarmanni á Tony að hafa hætt með söngkonunni kvöldið fyrir afmælið hennar. Lífið 15.7.2009 01:00
Orsök dauða Jackson liggja fyrir á næstu dögum Nákvæm orsök dauða Michaels Jackson munu liggja fyrir á næstu dögum þegar niðurstöður úr eiturefnaprófunum liggja fyrir. Aðstoðardánardómstjórinn Ed Winter segir að niðurstöður sumra prófa sem gerð voru á Jackson þegar liggja fyrir. Aðrar niðurstöður munu liggja fyrir í lok þessarar viku eða í byrjun þeirrar næstu. Lífið 14.7.2009 16:48
Bætti á sig fyrir brúðkaupið „Ég bætti á mig sjö kílóum fyrir brúðkaupið mitt, þannig að ég held að ég sé eina manneskjan í heiminum sem sleppti af sér beislinu fyrir stóra daginn," segir Sandra Bullock og hlær í samtali við You tímaritið. Lífið 14.7.2009 16:35